Töluvert spurt um kældan bjór í Vínbúðinni í Austurstræti Nanna Hlín skrifar 18. júlí 2008 14:50
Töluvert er spurt um kaldan bjór og annað léttvín í Vínbúðinni í Austurstræti að sögn verslunarstjóra búðarinnar, Einars Jónatanssonar. Sú þjónusta að selja kælt áfengi er ekki lengur í boði í búðinni að sögn Sigrúnar Óskar Sigurðardóttur hjá ÁTVR en þjónustunni var hætt vegna beiðni frá Reykjavíkurborg. Þangað til seinasta sumar var hægt að kaupa bjór og léttvín í kæli í Vínbúðinni í stykkjatali. Þáverandi borgarstjóri Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson beitti sér fyrir að því yrði hætt í átaki til þess að bæta ástandið í miðbæ Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum frá Sigrúnu eru kælar í sumum öðrum Vínbúðum. Þar er hins vegar um stærri kæla að ræða sem hægt er að setja bjór beint af brettum inn í kæli. Í Austurstræti hafi hins vegar verið lítill kælir með bjór og léttvín í stykkjatali. Sigrún segir ekki á döfinni að setja aftur kæli í Vínbúðina í Austurstræti. Nú sé ekki aðstaða þar fyrir jafn stóra kæla og í öðrum Vínbúðum en mögulegt væri að stór kæli myndi vera settur þar ef breytingar yrðu gerðar á búðinni. Vínbúðin er rétt við Austurvöll en þar er afar vinsælt að setjast niður í blíðskaparveðri og drekka eitthvað svalandi í sólinni, eins og kaldan bjór. Getur þá reynst leiðinlegt að aðeins sé hægt að kaupa slíkan drykk kaldan á kaffihúsum bæjarins, jafnvel þótt viðkomandi ætli ekki að nýta sér húsakost kaffihússins og á jafnvel erfitt með að taka glas út af staðnum. Hvorki Ólafur F. Magnússon borgarstjóri né Jakob Frímann Magnússon miðborgarstjóri vildu spá til um að það að hvort kælir yrði settur aftur upp í Austurstræti.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira