Innlent

90 þúsund manns í bænum - 100 lögreglumenn að störfum

Lögreglan telur að á bilinu 80 til 90 þúsund manns hafi verið í miðbæ Reykjavíkur um klukkan ellefu í gærkvöldi. Mannfjöldinn fylgdist þá með flugeladsýningunni sem jafnan er hápunktur dagskrár menningarnætur.

Mikill erill hefur verið hjá lögreglu síðasta sólarhringinn án þess að nein alavrleg atvik hafi átt sér stað.

Meira en 100 lögreglumenn komu að löggæslu í miðborginni í gærdag og nótt. Bæði tóku lögreglumenn úr öllum deildum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þátt í löggæslunni auk þess sem lögreglumenn frá Borgarnesi og Suðurnesjum voru kallaðir til aðstoðar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×