Innlent

Hugmynd Björns er forleikur að aðild

Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar.
Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar.

Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segir á vefsíðu sinni að hjá Sjálfstæðisflokknum hafi hugsanleg aðild að Evrópusambandinu snúist um hagsmunamat. Hann segir hugmynd Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, vera forleik að fullri aðild að Evrópusambandinu.

Björn vill að reynt verði að taka upp evru á Íslandi á grundvelli EES en án aðildar að ESB.

,,Þessi nálgun felur jafnframt í sér leið til að nálgast Evrópusambandsspurninguna á nýjan hátt, kalli hagsmunir Íslands á það. Hugmynd Björns Bjarnasonar birtist því mér sem forleikur að fullri aðild að Evrópusambandinu," segir Ágúst Ólafur.

VG í hlutverki nátttrölls

Um afstöðu Vinstri grænna segir Ágúst Ólafur að flokkurinn hafi kynnt til leiks þriðju leiðina og af henni megi ráða að VG sé að festast í hlutverki ,,nátttröllsins í íslenskri pólitík."

Ögmundur Jónsson, þingflokksformaður VG, velti nýverið upp möguleikanum á að segja skilið við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.

,,Með þessu útspili sínu sagði Ögmundur í Kastljósinu í gærkvöldi að hann ,,vildi dýpka umræðuna" og ,,fara nær skynseminni,"" segir Ágúst Ólafur og bætir við að hugmynd Ögmundar geti hvorki talist skynsöm né djúp.

Í skrifum Ágúst Ólafs kemur fram að Evrópunefndin heldur til Brussel í september.

Pistillinn í heild sinni má sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×