Vísaði frá máli jarðeiganda vegna Urriðafossvirkjunar 6. nóvember 2008 16:54
Hæstiréttur hefur staðfest frávísun Hérasdóms Reykjavíkur á þrautaþrautavarakröfu jarðeiganda við Þjórsá sem vildi að staðfest yrði með dómi að eignarréttur ríkisins á vatnsréttindum í Þjórsá í landi Skálmsholtshrauns væri niðurfallinn. Dómsmálið tengist áformum Landsvirkjunar um að byggja Urriðafossvirkjun sem er ein þriggja áformaðra virkjana í neðri hluta Þjórsár. Landeigandi Skálmholtshrauns sleit í fyrra viðræðum við Landsvirkjun um málið og bar við of mörgum óvissuþáttum um framkvæmdina. Ríkið öðlaðist vatnsréttindin á þessu svæði og víðar við Þjórsá með svokölluðum Títansamningum árið 1952. Höfðaði eigandi landsins mál þar sem krafist var viðurkenningar á því vatnsréttindi íslenska ríkisins að Þjórsá í landi Skálmholtshrauns, sem framseld hefðu verið til Landsvirkjunar, væru niður fallinn. Til vara fór eigandinn viðurkenningar á því að hafa eignast að nýju vatnsréttindi Skálmholtshrauns fyrir hefð og til þrautavara var krafist viðurkenningar á því að vatnsréttindi íslenska ríkisins væru niður fallin fyrir vangeymslu og tómlæti. Að lokum var þrautaþrautvarakrafa eiganda sú að vatnsréttindi ríkisins heimiluðu ekki byggingu Urriðafossvirkjunar með tilheyrandi lónum. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði bæði ríkið og Landsvirkjun af aðal-, vara- og þrautavarakröfunni og þá var þrautaþrautavarakröfunni vísað frá meðal annars á þeim grundvelli að dómkrafan fæli í sér lögfræðiálit og það væri andstætt lögum um meðferð einkamála. Eigandi jarðarinnar áfrýjaði frávísunarúrskurðinum til Hæstaréttar sem komst að sömu niðurstöðu og héraðsdómur.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Sjá meira