Tveir meintir kynferðisbrotamenn í varðhaldi vegna almannahagsmuna 20. júní 2008 12:15
Tveir menn sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna meintra grófra kynferðisbrota gegn börnum þeim nátengdum. Mennirnir sitja ekki inni vegna rannsóknarhagsmuna heldur almannahagsmuna. Mál annars þeirra hefur verið í hámæli en hann starfaði sem háskólakennari til skamms tíma. Níu einstaklingar hafa sakað hann um kynferðisbrot, 3 dætur af seinna hjónabandi, tvö börn af fyrra hjónabandi og fjórar vinkonur dætra hans. Sök í máli tveggja uppkominna barna hans er fyrnd og verður það því ekki rannsakað frekar. Rannsókn er lokið á málum dætranna og einnar vinkonu þeirra. Maðurinn játaði á sig hluta brotanna og þau eru nú komin til ríkissaksóknara. Talið er að rannsókn á meintum brotum vegna vinkvennanna þriggja ljúki eftir helgi og þá verður allt málið komið til ríkissaksóknara. Háskólakennarinn situr ekki lengur í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarhagsmuna heldur almannahagsmuna. Það er aðeins gert þegar meint brot varða tíu ára fangelsi eða meira, sem sagt þegar brotin eru talin svo gróf að ekki þyki verjandi að viðkomandi gangi laus. Annar karlmaður situr í gæsluvarðhaldi á sömu forsendum og er hann grunaður um brot gegn einu barni, sér nátengdu, samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2. Mál hans er enn í rannsókn.
Mest lesið Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Innlent Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Erlent Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Innlent „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Innlent Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Innlent Óvíst hvar börnin lenda í haust Innlent Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Erlent Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Innlent Fleiri fréttir Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Umferðarljós við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar óvirk Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum Mikið viðbragð Gæslunnar vegna veikinda langt úti á hafi Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Bein útsending: Sterkari saman - Þjóðarsjúkrahús í 25 ár Afstaða fær 600 þúsund í verðlaun frá Reykjavíkurborg Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Sakar RÚV um óvandaðan fréttaflutning um fjármál borgarinnar Rafmagnslaust á Granda Nítján í haldi vegna fíkniefnainnflutnings um Keflavíkurflugvöll Mál Margeirs til Landsréttar Fjármálaráðherra ánægður með söluna á Íslandsbanka Hvetja kattaeigendur til að setja kettina í útivistarbann „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Þrír grunaðir í tengslum við brunann á Stuðlum Ökumenn séu oft með óþarfa munnsöfnuð og fingurinn á lofti Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Óvíst hvar börnin lenda í haust Kölluð út vegna slagsmála og svo aftur vegna berserksgangs sama manns Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Ísland geti orðið fyrirmyndarríki í fangelsismálum Sjá meira