Innlent

Sumarbústaður brann til kaldra kola

Eldur í sumarbústað að sumri til.
Eldur í sumarbústað að sumri til.

Sumarbústaður í sumarbústaðarbyggð í Miðfellslandi brann til kaldra kola um klukkan þrjú í nótt. Tvennt var í bústaðnum þegar eldurinn kom upp. Þau náðu að koma sér út og fengu inni í öðrum bústað þar til lögregla og slökkvilið komu á vettvang. Slökkvistarfi lauk rétt fyrir klukkan sex, en þá hafði allt brunnið sem brunnið gat.

Ekki er ljóst hvernig eða hvar eldurinn kom upp. Tæknideild lögreglunnar er á leið á vettvang og málið er í rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×