Einkadans fyrir þrjá dansara 30. október 2008 00:01 Margrét Sara í verki þeirra þremenninga. Mynd Panic Productions
Sviðslistahópurinn Panic Productions frumsýnir nýjasta verk sitt, Private Dancer, á stóra sviði Borgarleikhússins í kvöld. Verkið má flokka undir dansleikhús en meðlimir hópsins búa yfir mikilli reynslu á þessu sviði. Höfundar semja verkið frá grunni og liggur að baki því mikil vinna og langur fæðingartími. Private Dancer er eftir Margréti Söru Guðjónsdóttur, Jared Gradinger og Sveinbjörgu Þórhallsdóttur og flytja þau líka verkið. Margrét Sara og Jared hafa á síðustu árum verið meðlimir í dansleikhúsi Constönzu Macras, Dorky Park, staðsett í Schaubuehne-leikhúsinu í Berlín. Margrét Sara hefur undanfarið unnið með Ernu Ómarsdóttur og voru þær tilnefndar til Grímunnar 2007 sem bestu danshöfundar og dansarar fyrir verkið Mysteries of love. Þær vinna nú að annarri sýningu, Mysteries of love II, ásamt fleirum. Sveinbjörg er reynslumikill danshöfundur og dansari og hefur verið kóríógrafer í mörgum sviðsuppfærslum hérlendis. Hennar nýjustu verk eru Skekkja, sem sýnt var í Borgarleikhúsinu í október í samstarfi við Íslenska dansflokkinn, og væntanleg jólasýning Þjóðleikhússins, Sumarljós. Jared er bandarískur leikari en hefur búið og starfað í Berlín um árabil og hefur fylgt Dorky Park frá upphafi og ferðast með hópnum með sýningar um allan heim. Hann er einnig listrænn stjórnandi How Do You Are Festival Les Grandes Traversees í Bordeaux. Panic Productions er sviðslistahópur og framleiðslufyrirtæki stofnað árið 2004 af Sveinbjörgu Þórhallsdóttur og Margréti Söru Guðjónsdóttur. Meginmarkmið þeirra er að starfa og skapa með erlendum listamönnum og færa afurðina heim til Íslands sem og sýna hana erlendis. Frá stofnun hafa átta verk verið gerð í nafni Panic Productions, með ýmsum listamönnum frá ýmsum löndum. Frumsýning á Private Dancer verður á stóra sviði Borgarleikhússins í kvöld og aðrar sýningar verða 1. og 2. nóvember. Aðeins verða þessar þrjár sýningar hér á landi. Í kjölfarið fer sýningin til Frakklands og sýnir þar á How Do You Are Festival Les Grandes Traversees í Bordeaux 30. desember Einnig eru áætlaðar sýningar í Berlín snemma á næsta ári og í Royan, Frakklandi í júní. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Lífið Baráttan um jólagestina hafin Lífið Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“ Tónlist Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Lífið Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Lífið Fleiri fréttir Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Sjá meira