Nær 63% Reykvíkinga andvíg nýja meirihlutanum 25. ágúst 2008 18:30
Tveir af hverjum þremur Reykvíkingum eru andvígir meirihlutasamstarfi Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks samkvæmt nýrri könnun Capacent fyrir Stöð 2. Fjórðungi kjósenda Framsóknarflokksins í borginni hugnaðist ekki að þessir tveir flokkar tækju saman við völdum í Reykjavík. Könnunin var gerð á sjö daga tímabili og hófst daginn sem nýr meirihluti Sjálfstæðismanna og Framsóknarflokksins var kynntur þann 14. ágúst. Spurt var: Ert þú fylgjandi eða andvígur meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borgarstjórn? Rúm níu prósent eru mjög fylgjandi og rösk fjórtán prósent frekar fylgjandi. Samtals er því tæpur fjórðungur aðspurðra hlynntir nýja meirihlutanum. 14,6 prósent er hvorki fylgjandi né andvíg. Tæp fimmtán prósent eru frekar andvíg en 47 prósent eru mjög andvíg. Nær 63% Reykvíkinga eru þannig andvíg nýja meirihlutanum. Afstaða manna til nýja meirihlutans ræðst að stórum hluta af því hvaða flokk þeir styðja. Þegar svörin voru greind eftir því hvaða flokk viðkomandi myndi kjósa eða væri líklegastur til að kjósa ef kosið yrði í dag til borgarstjórnar kom í ljós verulegur munur á afstöðu manna til nýja meirihlutans. Tæp sjötíu prósent kjósenda Sjálfstæðisflokksins eru fylgjandi - en níu prósent andvíg. Hver einasti kjósandi Frjálslynda flokksins er andvígur meirihlutasamstarfinu. Tæp 98% kjósenda Vinstri grænna er sömuleiðis andvígur og nærri níu af hverjum tíu kjósenda Samfylkingarinnar. Ríflega 62 prósent þeirra sem myndu kjósa Framsóknarflokkinn eru fylgjandi meirihlutasamstarfinu en athygli vekur að 25% þeirra eru því andvígir. Capacent kannaði afstöðu tæplega 730 Reykvíkinga á aldinrum 18-75 ára dagana 14. til 21. ágúst. Svarhlutfall var 55,1%
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sjá meira