Kom ekki að pukri RÚV 21. apríl 2008 15:30 MYND/Anton
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segist ekkert hafa haft með þá ákvörðun Ríkisútvarpsins að gera að neita Vísi um upplýsingar um launakjör starfsmanna félagsins. Þetta kom fram í svari hennar við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur, þingmanns Vinstri - grænna. Kolbrún benti á að Vísir hefði staðið í ströngu við að knýja fram upplýsingar um laun dagskrárstjóra sjónvarps og útvarps, en þar átti hún við Þórhall Gunnarsson og Sigrúnu Stefánsdóttur. Kolbrún benti á að stjórnarandstaðan hefði fyrir harðfylgi í fyrra komið því í gegn að Ríkisútvarpið ohf. yrði sett undir upplýsingalög en útvarpsstjóri hefði engu að síður neitað Vísi um umbeðnar upplýsingar sem samkvæmt almennum skilningi upplýsingalaga ættu að vera til reiðu. Spurði Kolbrún hvort það væri með samþykki ráðherra að RÚV neitaði að láta upplýsingarnar af hendi. „Samþykkir ráðherra þetta pukur?" spurði Kolbrún. Menntamálaráðherra kom í pontu og svaraði stutt og laggott nei. Kolbrún spurði þá ráðherra hvort hún væri þeirrar skoðunar að launakjör stjórnenda RÚV heyrðu undir upplýsingalög. Þorgerður Katrín benti á að hluti af nýjum lögum um RÚV ohf. hefði verið að gera stofnunina sjálfstæða og þannig að hún lyti ekki boðvaldi ráðherra. Sagði hún úvarpsstjóra fara með málið. Enn fremur benti hún á að þeir einstaklingar sem ynnu hjá RÚV væru ekki sviptir rétti sínum til þess að leita með mál fyrir dómstóla. Vísir hefur frá því í nóvember síðastliðnum beðið eftir upplýsingum um launakjör dagskrárstjóra RÚV, þeirra Þórhalls Gunnarssonar og Sigrúnar Stefánsdóttur.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Sjá meira