Fasteignasalan Domus styður langveik börn 23. apríl 2008 16:14 Linda Björk Stefánsdóttir og Ragna Marínósdóttir. MYND/Ragnar Örn Egilsson
Domus fasteignasala og Umhyggja - félag langveikra barna hafa hafið samstarf sem hefur það að markmiði að starfsmenn Domus veiti félagsmönnum Umhyggju aðstoð og stuðning er veikindi barna valda breyttum þörfum í húsnæðismálum. Domus fasteignasala býður félagsmönnum Umhyggju ráðgjöf á sviði fasteignaviðskipta sem felst meðal annars í að verðmeta núverandi húsnæði fólks og veita upplýsingar um verð húsnæðis sem mætir nýjum þörfum fjölskyldunnar. Einnig kannar Domus hvaða lánamöguleikar eru fyrir hendi á hverjum tíma. Stuðningur Domus við Umhyggju er jafnframt fólginn í því að félagið sjálft getur úthlutað sölumeðferðum til félagsmanna sinna án þess að til greiðslu komi fyrir þjónustuna. Greiður aðgangur að sérfræðiþekkingu Framkvæmdastjóri Umhyggju, Ragna Marínósdóttir, telur að með þessum samningi sé uppfyllt þörf félagsmanna fyrir mikilvæga þjónustu sem hingað til hefur ekki verið í boði í gegnum félagið. Samningurinn veiti félagsmönnum greiðan aðgang að mikilvægri sérfræðiþekkingu auk þess sem þeir geti sparað sér umtalsverðar fjárhæðir þegar skipt er um húsnæði. Linda Björk Stefánsdóttir, löggiltur fasteignasali hjá Domus, segir hugmyndina að þessu samstarfi hafa kviknað í tengslum við stefnumótunarvinnu fyrirtækisins. Ein af niðurstöðum þeirrar vinnu var að sett voru fram gildi fyrirtækisins sem starfsmönnum ber ávallt að hafa í huga í samskiptum sínum við viðskiptavini. Eitt þessara gilda er einmitt umhyggja, en umhyggja fyrir fólki og aðstæðum þess í fasteignaviðskiptum er afar mikilvæg vegna þess að um flókin viðskipti er að ræða og miklir fjármunir í húfi.
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Fleiri fréttir Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Sjá meira