Sextán ára fangelsi fyrir manndráp við Hringbraut 22. maí 2008 11:44
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Þórarinn Gíslason í sextán ára fangelsi fyrir að hafa ráðið Borgþóri Gústafssyni bana í íbúð við Hringbraut í Reykjavík í október í fyrra. Til frádráttar kemur gæsluvarðhald sem Þórarinn hefur sætt frá 7. október.Þórarni var gefið að sök að hafa 7. október í fyrra veitt nágranna sínum, Borgþóri, þrjú högg í höfuðið með duftslökkvitæki. Við það brotnaði höfuðkúpa fórnarlambsins á þremur stöðum þannig að það blæddi inn á hana og Borgþór lést í kjölfarið.Þórarinn neitaði sök í málinu og sagði að ekkert ósætti hefði verið á milli sín og fórnarlambsins en þeir hefðu verið að drekka saman kvöldið og morguninn áður en Borgþór lést. Hann sagðist svo hafa komið að Borgþóri látnum síðar um daginn og tilkynnt lögreglu um það.Við aðalmeðferð málsins kom fram að blóðug föt hefðu fundist inni hjá hinum ákærða en hann skýrði það á þá leið að hann hlyti að hafa þurrkað sér í þau eftir að hafa fundið nágranna sinn alblóðugan. Þá fundust áverkar á höndum hins ákærða sem benda til aðildar hans að málinu.Rannsóknarlögreglumaður sem bar vitni sagði að öryggismyndavélar sýndu að svo virtist sem mennirnir hefðu verið að rífast áður en Borgþór hefði fundist látinn.Dómurinn komst að því út frá framburði Þórarins að hann hefði verið að langmestu leyti í óminnisástandi (blackout) og væri því ekki byggjandi á reikulum framburði hans. Út frá framburði vitna og sönnunargögnum komst dómurinn að því að Þórarinnn væri sekur og ætti sér engar málsbætur.Auk þess var hann dæmdur til að greiða systkinum Borgþórs hálfa milljón króna í skaðaætur.Enginn á að þurfa að deyja á þennan háttLögmaður Þórarins sagði eftir að dómurinn var kveðinn upp að tekin yrði ákvörðun síðar um það hvort málinu yrði áfrýjað. Til þess hefur Þórarinn fjórar vikur.Ólafía Gústafsdóttir, systir Borgþórs, sagði við blaðamann Vísis að hún teldi dóminn ásættanlegan en „það á enginn að þurfa að deyja á þennan hátt, hvorki hann né aðrir."
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Fleiri fréttir Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Sjá meira