Bar umboð sitt undir borgarlögmann áður en farið var í viðræður 7. febrúar 2008 20:21 Vilhjálmur Þ. Vilhálmsson.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi og tilvonandi borgarstjóri í Reykjavík segist hafa borið umboð sitt í REI málinu svokallaða undir borgarlögmann áður en hann fór í málið. „Ég fékk úr þessu skorið og það hefði ekki hvarflað að mér að gera þetta án þess að vera með umboð," sagði Vilhjálmur í Kastljósi Ríkisútvarpsins fyrir stundu. Vilhjálmur segir hins vegar að í ljósi þess að tveir lögmenn sem fengnir voru til ráðgjafar í málinu hafi sagt að vafi leiki á umboði borgarstjóra í málinu þá sé brýnt að skerpa á þessum málum fyrir framtíðina. Hann sagði einnig að hingað til hefði ekki tíðkast að borgarstjóri sækti umboð til borgarráðs þegar kæmi að málum sem þessum. Sigmar Guðmundsson, spyrill í Kastjósinu, benti á misræmi í orðum Vilhjálms í sama þætti í október. Þann fjórða þess mánaðar sagðist Vilhjálmur hafa haft vitneskju um kaupréttarsamningana sem gera átti við stjórnendur REI og starfsmenn Orkuveitunnar. Fjórum dögum síðar kom hann hins vegar í sama þátt og neitaði að hafa haft vitneskju um málið. Vilhjálmur kannaðist ekki við þetta misræmi í kvöld og sagðist telja að snúið hafi verið út úr orðum hans. Aðspurður hvort enginn ætti að bera ábyrgð í málinu sagðist hann ekki vilja fella sleggjudóma og benti á að stjórnir REI og OR ættu eftir að fjalla um málið. „Ég vil ekki fullyrða um hvort einhver þurfi að bera ábyrgð í málinu," sagði Vilhjálmur og bætti því við að núverandi borgarstjóri Ólafur F. Magnússon þurfi að útskýra betur orð sín frá því í dag þegar hann sagði ljóst að einhverjir verði að bera ábyrgðina. „Borgarstjóri verður að botna það sjálfur," sagði hann. Aðspurður hvort hann hafi íhugað að segja af sér vegna málsins sagði hann svo ekki vera.
Mest lesið Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Erlent „Klukkan tifar“ Innlent Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Innlent „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Fleiri fréttir Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ „Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar Dómari kannar aðbúnað barna í vist á einkaheimilum Dómsmálaráðherra svarar gagnrýni á reynslulausn Uppsögn kjarasamninga geti verið óhjákvæmileg Rafmagnslaust í Mosfellsdal Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Sjá meira