Björgunarsveitir kallaðar út - Reykjanesbraut lokuð 7. febrúar 2008 09:19 MYND/Stöð 2
Vegurinn undir Hafnarfjalli er nú lokaður vegna þess hve færðin er slæm en það á við víða á landinu. Lögreglan á Akranesi segir í tilkynningu að ekkert ferðaveður sé nú á Vesturlandsvegi og vegunum kring um Akrakfjall. Mikill snjór er á vegum og blint og við bætist að að þar eru margir bílar fastir. Lögregla og björgunarsveitir bæði frá Akranesi og úr Borgarnesi vinna að því að aðstoða fólk sem er fast í bílum sínum og að koma föstum bílum út fyrir veg þannig að hægt verði að ryðja. Fram kemur í tilkynningu Vegagerðarinnar að búið sé að loka veginum um Hellisheiði og Þrengsli. Þá segir í tilkynningu frá Umferðarstofu að Reykjanesbrautin sé nú ófær og eru lögreglumenn og björgunarsveitarmenn að aðstoða fjölda ökumanna sem sitja fastir í bílum sínum á veginum. Biður lögregla fólk að leggja ekki á Reykjanesbrautina. Þæfingsfærð og snjókoma er víðast hvar á Suðurlandi og stendur mokstur yfir. Þæfingsfærð er á Holtavörðuheiði sama má segja um Snæfellsnes. Stórhríð er þar og ekkert ferðaveður. Á Vestfjörðum er snjóþekja á flestum leiðum þó er þæfingsfærð á fjallvegum og þungfært yfir Steingrímsfjarðarheiði, mokstur stendur yfir. Á Norðurlandi er ýmist hálka eða snjóþekja og sumstaðar einhver él eða skafrenningur. Þæfingsfærði er á Víkurskarði. Á Norðaustur- og Austurlandi er ófært á Möðrudalsöræfum, Vopnafjarðarheiði og Fjarðarheiði. Flughálka er í kringum Egilstaði. Snjóþekja og hálka er á öðrum leiðum. Breiðdalsheiði og Öxi eru lokaðar.
Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Innlent Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Erlent Fleiri fréttir Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um varðandi samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Sjá meira