Innlent

Spánarfari styður frásögnina um ofbeldisfulla Íslendinginn

Spænska lögreglan hafði afskipti af Halldóri fyrir tveimur árum vegna leigubrasks hans. Halldór sést snúa baki í myndavélina.
Spænska lögreglan hafði afskipti af Halldóri fyrir tveimur árum vegna leigubrasks hans. Halldór sést snúa baki í myndavélina.

Kolbrún Jónsdóttir, sem leigði hús hjá Halldóri Haraldssyni á Spáni í fyrra, segir í samtali við Vísi að reynsla hennar af Halldóri sé algjörlega í takt við þá lýsingu sem Mark Mayland hafi gefið af honum. Mark sagði í samtali við Vísi í morgun að Halldór hefði í sífelldum hótunum við sig og fjölskyldu sína.

„Við leigðum hús af honum síðasta sumar, en strax daginn eftir kemur pabbi Marks og talar við mig," segir Kolbrún. Hún segir að pabbi Marks hafi gert sér grein fyrir því að Halldór hefði enga heimild til að leigja húsið. Henni tókst samt að semja um að fá að vera í húsinu fyrst hún var komin út með alla fjölskylduna með sér.

„Svo varð strákurinn minn sem er átján ára vitni að því þegar Halldór og konan hans komu og gersamlega úthúðuðu nágrönnum okkar," segir Kolbrún. Halldór hafi jafnvel hótað þeim barsmíðum. Hún segir að hún hafi þá hringt í Halldór og kvartað yfir framkomu hans. Eftir það hafi samskiptin við hann orðið skelfileg. „Þau komu þá og hótuðu að senda á okkur lögreglu og kölluðu okkur ljótustu nöfnum sem fundust gátu," segir Kolbrún.

Kolbrún segir að eitt af því versta við að upplifa þessi samskipti við Halldór hafi verið það að hún hafi verið með tvö sjö ára gömul börn sem hafi orðið vitni að framkomu hans. Halldór og konan hans hafi einnig verið með fjögurra ára gamla dóttur sína sem hafi orðið vitni að öllu saman. "Konan hans er skelfileg. Hún er jafnvel enn verri en Halldór sjálfur og stelpan þurfti að horfa upp á þetta allt saman," segir Kolbrún.

„Tveggja vikna leiga á húsinu kostuðu 8 - 900 evrur. Þægindin áttu að fylgja en húsið var nánast hrátt. Og enginn ókeypis akstur frá flugvellinum eins og hafði verið lofað," segir Kolbrún enn fremur um svikin við sig.

Vísir hefur rætt við þriðja aðilann sem hafði sambærilega sögu að segja af Halldóri. Um algerar vanefndir vegna leigu á sumarhúsum á Spáni. Sá aðili vildi ekki koma fram undir nafni.












Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×