Lífið

Vinsæl Abba-sýning kemur til Íslands

Vinsælasta Abba-sýning í heimi verður sett upp á Íslandi í nóvember.
Vinsælasta Abba-sýning í heimi verður sett upp á Íslandi í nóvember.

Hið ótrúlega Abba-æði sem gengið hefur yfir Ísland virðist engan enda ætla að taka. Ríflega hundrað þúsund manns hafa séð kvikmyndina Mamma Mia! í bíóhúsum landsins og plata með tónlistinni úr myndinni hefur rokið út. Abba-óðir Íslendingar fá nú enn eitt tilefnið til að gleðjast því vinsælasta Abba-sýning í heimi er á leið til landsins. Sýningin kallast The Music of Abba og er flutt af sænsku hljómsveitinni Arrival. Það er athafnamaðurinn Eyþór Guðjónsson sem stendur að komu Abba-sýningarinnar sem sett verður upp í Vodafone-höllinni 8. nóvember næstkomandi.

„Þau eru nýkomin úr tónleikaferð sinni um Bandaríkin en þau spiluðu þar á 40 tónleikum. Þetta gekk allt frekar hratt fyrir sig en við gengum endanlega frá samningum við þau í síðustu viku. Það kostaði töluverða vinnu að koma Íslandi fyrir í Evróputúrnum en bara í nóvember eru þau með 18 tónleika víðs vegar um álfuna," sagði Eyþór í samtali við Fréttablaðið í gær.

Arrival hefur ferðast með sýninguna undanfarin þrettán ár og komið fram í yfir tuttugu löndum. Tólf manns eru í bandinu, topptónlistarmenn að sögn Eyþórs. Meðlimir Arrival hafa átt í nánu samstarfi við Björn og Benny úr Abba. Þannig er sveitin sú eina sem hefur leyfi til að klæðast nákvæmum eftirlíkingum af búningum Abba. Þá hefur hljómsveitin fengið leyfi til að gefa út óútgefið Abba-lag, Just a Notion.

Tónleikarnir verða laugardagskvöldið 8. nóvember klukkan 21. Miðasala hefst á Miði.is á föstudaginn. - hdm








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.