Siv: Hneyksli hvernig Samfylkingin hegðar sér í eftirlaunamálinu 4. nóvember 2008 14:28 MYND/Anton
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði á Alþingi í dag að það væri hneyksli hvernig Samfylkingin hefði hegðað sér varðandi hin umdeildu eftirlaunalög og kallaði eftir því að flokkurinn léti verkin tala. Siv benti á í fyrirspurnartíma að fimm þingmenn Samfylkingarinnar hefðu í fyrra lagt fram frumvarp um að breyta lögum um eftirlaun æðstu embættismanna. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra, hefði svo sagt í vor að hún vildi helst breyta lögunum fyrir slit á vorþingi. Ekkert hefði gerst en hins vegar hefði kastað tólfunum á dögunum þegar Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, hefði nýverið sagt að hann vildi breyta lögunum strax. Sagðist Siv telja að það væri stefna allra flokka á þingi að breyta lögunum. Benti hún enn fremur á að stjórnin hefði 43 manna þingmeirihluta og spurði því Össur Skarphéðinsson, staðgengil utanríkisráðherra, hvers vegna ekki væri búið að breyta lögunum. Össur Skarphéðinsson benti á að fregnir hefðu borist að því að reynt yrði að ná samstöðu um málið á þingi. Hann teldi það mikilvægt og það réðist meðal annars af afstöðu stjórnarandstöðunnar hvenær sú samstaða næðist. Þetta væri mál sem stjórnarmeirihlutinn hygðist ekki knýja fram í andstöðu við vilja stjórnarandstöðunnar. Þar með væri hann ekki að segja að stjórnarandstaðan væri á móti breytingunum en vinna þyrfti málið hratt og ná breiðri samstöðu. Benti hann á að Ingibjörg Sólrún hefði sagt nýverið að hún vænti þess að það gerðist fyrir jól. Siv Friðleifsdóttir undraðist orð Össurar um að stjórnin vildi ekki knýja fram afstöðu stjórnarandstöðunnar í málinu. Benti Siv á að stjórnarandstaðan væri að bjóða fram krafta sína. Ítrekaði hún mikinn þingstyrk meirihlutans og spurði hvers vegna ekki væri búið að ná samstöðu um breytingar.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira