Þorgerður Katrín: Við erum ekki gjaldþrota Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. nóvember 2008 11:31 „
Við erum ekki gjaldþrota, en við eigum minna heldur en áður og það er bara eins og lífið er," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Hún og Kristján Arason eiginmaður hennar, áttu hlut í Kaupþingi í gegnum félag þeirra, 7 hægri ehf. Þorgerður segir að langt sé síðan að til þessa félags hafi verið stofnað. Þorgerður segir að Kristján hafi haft mikla trú á Kaupþingi í febrúar „Og virði fyrirtækisins óx eftir það þannig að við ákváðum að setja okkar sparnað í þetta félag. Við trúðum því að íslenskt efnahagslíf myndi standa sig, við trúðum því að bankakerfið væri sterkt," segir Þorgerður um þær ákvarðanir sem þau hjónin tóku. „En við hjónin erum búin að tapa miklum peningum eins og margir aðrir Íslendingar," bætir Þorgerður við. Grunur leikur á að skuldir æðstu stjórnenda Kaupþings vegna hlutabréfakaupa í bankanum hafi verið afskrifaðar skömmu fyrir þjóðnýtingu bankans. Haft er eftir Kristjáni í DV í dag að lán hans vegna kaupa á bréfum í bankanum hafi ekki verið strokuð út og Þorgerður segir að málið setji sig ekki í óþægilega stöðu. „En það sem skiptir máli er að allt komi upp á borðið því að það er gersamlega óþolandi ef að ég eða minn maður erum sett í einhverja óþægilega stöðu," segir Þorgerður. Hún segir að allir verði að tala hreinskilnislega og það hafi enginn neitt að fela í þessu máli. Þorgerður segir að ekki sé búið að gjaldfella skuldirnar vegna kaupa á hlutabréfunum í bankanum, þannig að ekki sé ljóst hvort að 7 - hægri taki skuldirnar eða hvort þau hjónin geri það persónulega.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Sjá meira