Valgerður virðir ákvörðun Bjarna 11. nóvember 2008 10:22 MYND/GVA
Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, segist virða ákvörðun Bjarn Harðarsonar, flokksbróður síns, að segja af sér þingmennsku vegna bréfs sem hann hugðist láta senda fjölmiðlum undir nafnleynd og hafði að geyma harða árás á Valgerði. Bjarni hugðist láta aðstoðarmann sinn senda bréfið undir nafnleynd en sendi óvart þau tilmæli ásamt bréfinu á alla fjölmiðla. Í harðorðu bréfinu, sem fylgir tölvupóstinum og undirritað er af tveimur framsóknarmönnum, er Valgerður minnt á ábyrgð hennar við einkavæðingu bankanna. Þá eru gerðar miklar athugasemdir við afstöðu Valgerðar gagnvart Evrópusambandinu. Valgerður sagði í Bítinu á Bylgjunni í morgun að það yrði erfitt fyrir Bjarna að sitja áfram og nú hefur komið á daginn að Bjarni ákveður að segja af sér. „Ég virði þessa ákvörðun Bjarna og tel hana í samræmi við hans málflutning. Hann hefur talað um að menn axli ábyrgð á gjörðum sínum og nú gerir hann það," segir Valgerður. Af hennar hálfu sé málinu lokið. Aðspurð hvort hún telji að málið skaði flokkinn mikið segir Valgerður erfitt að segja. „Ég veit að það voru farnar að berast úrsagnir úr flokknum en ég veit ekki hver viðbrögðin verða eftir þessi nýjustu tíðindi. Við verðum að vona það besta," segir Valgerður.
Mest lesið Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Deilt um verðhækkanir Veitna Innlent Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Innlent Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Erlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Hljóp á sig Innlent Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Innlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira