Innlent

Hrikalegt að sleppa táknmálsfréttum þegar skjálftinn reið yfir

Sigurlín Margrét er framkvæmdastjóri Táknmáls ehf.
Sigurlín Margrét er framkvæmdastjóri Táknmáls ehf.

„Mér fannst nú hrikalegt að þeir skyldu sleppa þeim, miðað við tímasetningu hafði RÚV kjörið tækifæri til að koma aðvörunum Almannavarna á framfæri á táknmáli til jafns við aðra landsmenn," segir Sigurlín Margrét Sigurðardóttir framkvæmdastjóri þegar Vísir spyr hana út í þá staðreynd að RÚV felldi niður táknmálsfréttir fimmtudaginn 29. maí, daginn sem Suðurlandsskjálftinn gekk yfir.

„Þetta hefði ekki gerst ef málefnum minnihlutahópa væri sinnt. Þetta er nú enn almenningssjónvarp þó opinbert hlutafélag er. Textinn sem settur var á skjáinn var pínu bragabót en hann hefði átt að vera með stærra letri. Upplýsingar á textanum voru ekki uppfærðar reglulega og voru sömu upplýsingar aftur og aftur þó eitthvað hafi komið af nýjum upplýsingum sem ég geri mér hugarlund um að svo sé."

"Hefði ég hinsvegar verið í húsinu hefði ég boðist til að koma brýnustu upplýsingum áleiðis á táknmáli, jafnvel við hlið Boga (Ágústsonar) ef svo hefði borið að, þannig hefði upplýsingarskyldu um jarðskjálftann verið sinnt til allra landsmanna."

„Ég sendi póst á fréttastofu RÚV og bað þá um að hleypa táknmálsfréttum að og minnti á að heyrnarlaust fólk væri farið að bíða eftir að fá sínar upplýsingar. Því var ekkert svarað, enda mikill hamagangur í gangi."

„Svona almennt séð þá finnst mér að Almannavarnir ættu að spá aðeins í táknmálið sem upplýsingarmiðil þegar vá ber að dyrum. Heyrnarlausir eru enn gleymdur hópur, því skal að stórum hluta kenna að enginn ráðgefandi um þessi mál er starfandi hjá ríkinu sem og í RÚV."

„Hvað mig sjálfa varðar í jarðskjálftanum, þá fann ég vel fyrir honum, var ein heima og svona í þann mund að fara út. Sat við tölvuna og horfði á hamaganginn í íbúðinni, ljósið ruggaði yfir hausunum á mér, stólarnir skröltu og glerskápurinn skalf. Ég bý á fjórðu hæð og varð svolítið hrædd en þaut svo út að sækja dóttur mína og athugaði í leiðinni með son minn. Það var allt í lagi með þau."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×