Samið um markalínur vegna olíumála 3. nóvember 2008 14:29
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Jónas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, undirrituðu í dag samning milli landanna um kolvetnisauðlindir, eins og olíu og gas, sem kunna að liggja yfir markalínur. Samkvæmt samningnum skal í þeim tilvikum þegar kolvetnisauðlind nær yfir á landgrunn beggja landanna gera sérstakan samning um skiptingu auðlindarinnar milli landanna og um nýtingu hennar. Enn fremur undirrituðu ráðherrarnir samkomulag þar sem er nánar kveðið á um 25 prósenta þátttökurétt Íslands og Noregs í olíustarfsemi á hluta hvors annars af landgrunninu á hinu sameiginlega nýtingarsvæði milli Íslands og Jan Mayen samkvæmt samningi landanna frá 1981. Samningarnir eru forsenda þess að unnt verði að veita leyfi til leitar og vinnslu á kolvetnisauðlindum á Drekasvæðinu en stefnt er að því að bjóða út slík leyfi á næsta ári. Þá kemur enn fremur fram í tilkynningu utanríkisráðuneytisins að ráðherrarnir hafi rætt um stöðu Íslands og stuðning Noregs í formi lánafyrirgreiðslu og sérfræðiaðstoðar, þ.á m. vegna fyrirhugaðrar rannsóknar á atvikum sem leiddu til bankakreppunnar á Íslandi. Megináhersla beggja ráðherra á fundinum var að brýnt væri að leiða til farsælla lykta samkomulag við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og samfara því lán frá öðrum Norðurlöndum. Ráðherrarnir ræddu einnig um samstarf Íslands og Noregs innan NATO, sameiginlega öryggishagsmuni og stöðu Íslands og Noregs gagnvart EES og Evrópusambandinu.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira