Búið að komast fyrir eldinn í tuninum 9. apríl 2008 22:46 MYND/Lillý
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur að mestu náð að ráða niðurlögum eldsins sem kom upp á annarri hæð í tengibyggingu við turninn í Kópavogi á tíunda tímanum í kvöld.Töluverðan reyk lagði frá byggingunni þegar slökkvilið kom á vettvang og tók nokkrun tíma að finna eldsupptökin. Þau reyndust í rými sem verið var að innrétta á annarri hæð tengibyggingarinnar og var aðeins um hálftími liðinn frá því að síðasti maður fór úr vinnu í rýminu þar til tilkynnt var um eldinn.Að sögn Höskuldar Einarssonar, deildarstjóra hjá slökkviliðinu, var eldveggur á milli tengibyggingarinnar og turnsins sjálfs og því ekki mikil hætta á ferðum. Hins vegar hefði turninn verið rýmdur af varúðarástæðum. Fólk var bæði á 19. hæð hússins, þar sem er að finna veitingastað, og á þeirri 15. þar sem líkamsræktarstöðin World Class er til húsa. Að sögn Höskuldar voru þó fáir á hvorum stað. Mannskapurinn í veitingahúsinu hafi verið um tvær og hálfa mínútu á lið niður. „Það er mjög gott og ágætt að prófa það." sagði Höskuldur.Tilkynning um eldinn barst nánast á slaginu hálftíu og var allt tiltækt slökkvilið á öllum stöðvum á höfuðborgarsvæðinu kallað út. Fyrstu bílar úr Hafnarfirði voru komnir á vettvang um tveimur til þremur mínútum eftir útkallið og gengu aðgerðir vel á vettvangi. Höskuldur taldi að á bilinu 30-40 menn hefðu verið á vegum slökkviliðsins á svæðinu.Sem fyrr segir hefur eldurinn að mestu verið slökktur en nokkur reykur er enn í rýminu og því þarf að reykræsta. Ekki liggur fyrir hver eldsupptök voru.Þær upplýsingar fengust hjá lögreglu að tveir lögreglubílar hefðu verið í grenndinni þegar tilkynningin barst og voru þeir fyrstir á vettvang. Munu þeir hafa tekið þátt í að rýma turninn með því að hlaupa upp hann.Talsvert var um umferð við turninn í kvöld og var þar að líkindum forvitið fólk á ferð að sögn fréttamanns Stöðvar 2 sem var á vettvangi.
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Fleiri fréttir Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Sjá meira