Tókst með naumindum að bjarga lífi öryggisvarðar 8. apríl 2008 16:44 MYND/Valli
Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að karlmaður sem grunaður er um að hafa slegið öryggisvörð í höfuðið með glerflösku í verslun 10-11 í Austurstræti um helgina skuli sæta gæsluvarðhaldi þar til á morgun. Eins og fram hefur komið í fréttum var öryggisvörðurinn um tíma þungt haldinn á gjörgæsludeild enda blæddi inn á heilann. Segir í greinargerð lögreglu með gæsluvarðhaldsúrskurði að heilablæðingin hafi verið lífshættuleg og tekist hafi með naumindum að bjarga lífi öryggisvarðarins. Hann er nú á góðum batavegi. Árásarmaðurinn hafði verið til vandræða í versluninni fyrr um nóttina og verið fjarlægður þaðan af lögreglu. Hann kom síðan aftur að versluninni um klukkustund síðar og réðst á öryggisvörðinn utan við verslunina og sló hann í höfuðið með glerflösku. Getur ekki rengt árásina Við yfirheyrslu hefur árásarmaðurinn greint frá því að hann hefði ásamt félaga sínum verið staddur við verslun 10-11. Öryggisvörður hafi meinað honum inngöngu í verslunina og hann því orðið pirraður. Ögrandi orðaskipti hafi verið milli hans og öryggisvarðarins og hafi komið til átaka milli þeirra. Kærði segist ekki muna eftir að hafa slegið öryggisvörðinn með flösku í höfuðið en aðspurður segist hann ekki geta rengt það. Fram kemur í greinargerð lögreglu að brotið sé sérstaklega alvarlegt og svo virðist sem litlu hafi mátt muna að bani hafi hlotist af atlögunni. Rannsókn málsins sé skammt á veg komin. Eftir sé að yfirheyra vitni og öryggisvörðinn. Þá sé eftir að afla upptöku úr eftirlitsmyndavél utan dyra sem skýrt geti nánar atvik málsins og aðdraganda og hvort fleiri vitni séu til staðar sem upplýst geti frekar um meintan verknað. Gangi árásarmaðurinn laus geti hann spillt fyrir rannsókn málsins með því að hafa áhrif á framburði vitna.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira