Vill hækka stöðumælagjaldið 8. apríl 2008 15:46
Framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs vill hækka gjaldið í stöðumælana í Reykjavík. Hæsta gjald fyrir bílastæði í Reykjavík er 150 krónur á klukkustund en í Kaupmannahöfn eru teknar 426 krónur fyrir sambærilegt stæði að því er fram kemur í tilkynningu frá Umhverfissviði. „Gjaldskrá þarf að hækka í Reykjavík og ökumenn þurfa að huga betur að umgengni sinni gagnvart gangandi og hjólandi vegfarendum," segir Kolbrún Jónatansdóttir framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs Reykjavíkurborgar. Í tilkynningunni kemur einnig fram að gjaldskrá vegna bílastæða í Reykjavík sé ekki sambærileg við þær sem gilda í öðrum höfuðborgum á Norðurlöndum né heldur í London. „Kolbrún hefur tekið saman tölur um þetta sem voru kynntar í umhverfis- og samgönguráði Reykjavíkur í dag. Hún nefnir sem dæmi að lagt er 1500 kr. gjald á bifreið ef gjaldmælir er fallinn, gjald sem lækkar í 950 kr. ef það er greitt innan þriggja daga. Danskir ökumenn í Kaupmannahöfn greiða hins vegar 8.364 kr. fyrir sama athæfi. Leggi ökumaður á gangstétt eða í stæði fyrir fatlaða er lagt á þá 2.500 kr. stöðubrotagjald í Reykjavík sem lækkar í 1.950 kr. ef greitt innan þriggja daga." „Gjaldskrá Bílastæðasjóðs Reykjavíkur er langt á eftir miðað við það sem gerist í nágrenni við okkur," segir Kolbrún og að gjaldtaka fyrir stöðubrot sé aðeins brot af því sem gerist annars staðar. Verð fyrir bílastæði í bílastæðahúsum Bílastæðasjóðs er 80 krónur fyrir fyrsta klukkutímann og 50 krónur eftir það. Hálfur dagur kostar því 230 krónur. Hálfur dagur í Osló í Noregi kostar 2.520 krónur. Þá segir að lokum í tilkynningunni að „umgengni á bifreiðum er umhverfismál í Reykjavík sem þarf að vera á dagskrá." Kolbrún vill einnig vinna því að bæta viðhorf borgarbúa til Bílastæðasjóðs og ekki síst stöðuvarða sem eru „eingöngu að sinna vinnu sinni."
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Innlent Ted Turner er látinn Erlent Fleiri fréttir „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Sjá meira