Verður að fara varlega í vegarlagningu við Þingvelli 3. apríl 2008 11:09 MYND/Anton
Þorgerður Katín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir að stíga verði varlega til jarðar þegar verið sé að leggja veg á því viðkvæma svæði sem Þingvellir og nágrenni eru. Þetta kom fram í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri - grænna, benti á að vatnalíffræðingar hefðu skorið upp herör gegn lagningu Gjábakkavegar á milli Þingvalla og Laugarvatns vegna umhverfisáhrifa hans. Fremstur í flokki færi þar dr. Pétur M. Jónasson sem hefði kært vegarlagninguna. Þá sagði Álfheiður að það tíðkaðist hvergi að hraðbrautir væru lagðar um þjóðgarða sem væru á heimsminjaskrá UNESCO og benti hún á að UNESCO fylgdist með framvindu málsins og áhrifum þesss á stöðu Þingvalla á heimsminjaskrá. Innti Álfheiður ráðherra eftir áliti á málinu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir benti á að Gjábakkavegur væri ekki skipulagður innan þjóðgarðsins sjálfs en það mætti taka undir það að það væri áhyggjuefni þegar verið væri að setja upp veg við þetta viðkvæma svæði, bæði út frá menningarsögu og vatnsvernd. Það yrði að stíga varlega til jarðar við vegarlagninguna. Álfheiður fagnaði svari ráðherra og sagðist taka undir þá áskorun á samgönguráðherra að breyta vegarlagningunni áður en meiri skaði væri skeður. Það væri ekki hægt að skella skollaeyrum við ábendingum frá Pétri M. Jónassyni sem hefði varið ævistarfi sínu í rannsóknir á Þingvöllum. Hann óttaðist áhrif vegarins á vatnsbúskap og hrygningu fiska í Þingvallavatni.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira