Vaxandi eftirspurn eftir silungsveiðileyfum 1. apríl 2008 12:53
Vaxandi eftirspurn er eftir silungsveiðileyfum sem eru allt að tífalt ódýrari en laxveiðileyfi. Veiðitímabilið hófst í morgun á öllum hefðbundnum veiðisvæðum. Undantekning er þó Varmá í Ölfusi. Þar er enn verið að meta afleiðingar mengunarslyssins í fyrra þegar klór frá sundlauginni í Hveragerði barst út í ána og drap þar fisk í stórum stíl. Vísast hefur annað lífríki líka skaðast. Til skýringar skal þess getið að sjóbirtingur og urriði eru í raun það sama nema sá hluti stofnsins sem gengur tímabundið til sjávar nefnist sjóbirtingur en urriði heldur sig alltar í ám og vötnum. Sami munur er á bleikju og sjóbleikju en allar þessar tegundir heita einu nafni silungur. Heldur færri urriðum er nú landað ár eftir ár en áður og bleikju hefur fækkað mikið síðastliðin fimm ár án þess að vísindalegar skýringar séu á því. En allt að einu þá fagna margir veiðimenn því að geta loks dýft öngli fyrir fisk og fjöldi fiska skiptir ekki öllu máli þar sem menn stunda veiðarnar ekki í ábataskyni. Leyfi á þessar veiðar eru frá þremur þúsundum upp í tíu þúsund fyrir stöng á dag og er aðstaða í veiðihúsi innifalinn í dýrustu leyfunum. Það er því himinn og hafa á milli veiðileyfa á silung og lax því laxveiðileyfi kosta allt upp í 150 þúsund krónur á stöng á dag með fæði og húsnæði.
Mest lesið Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Innlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira