Ræðir um loftlagsmál og öryggisógnir í New York 31. mars 2008 11:14 MYND/Hrönn
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flytur á morgun fyrirlestur um loftslagsbreytingar og nýjar öryggisógnir á vegum Carnegie Council í New York. Þá mun forsetinn einnig funda með fjölmörgum sendiherrum hjá Sameinuðu þjóðunum þar sem fjallað verður um framboð Íslands til Öryggisráðsins. Fram kemur í tilkynningu frá forsetaembættinu að Carnegie Council sé ein af virtustu stofnunum í Bandaríkjunum á vettvangi alþjóðamála og verður fyrirlestri forseta útvarpað á WPKN-útvarpstöðinni. Jafnframt verður hægt að hlusta á fyrirlesturinn og samræður sem fylgja munu í kjölfarið gegnum netsíðu Carnegie Council, www.cceia.org, en einnig verður tenging á hana á heimasíðu forsetaembættisins, forseti.is. Fyrirlesturinn hefst á morgun kl. 12 að íslenskum tíma og að honum loknum mun forseti svara fyrirspurnum. „Í fyrirlestrinum verður fjallað um þau öryggisvandamál sem birtast munu mannkyni á næstu áratugum ef ekki tekst að koma í veg fyrir varanlegar loftslagsbreytingar. Hinar nýju öryggisógnir munu m.a. stafa af kreppu í vatnsbúskap jarðarinnar, stórfelldri eyðingu ræktaðs lands og fæðuskorti, flóðum og langvarandi þurrkum, fellibyljum og straumi flóttafólks frá þeim löndum og heimshlutum sem verða verst úti," segir í tilkynningu forsetaembættisins. Þar segir einnig að Ólafur Ragnar muni fjalla um nauðsyn þess að koma í veg fyrir frekari hlýnun loftslags svo forða megi mannkyni frá þessum nýju öryggisógnum. Því verði alþjóðastofnanir eins og Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að taka þær til umfjöllunar. Forseti Íslands fundar á morgun á og miðvikudag með sendiherrum ríkja í Suður-Ameríku og með sendiherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hjá Sameinuðu þjóðunum. Á þessum fundum verður fjallað um framboð Íslands til Öryggisráðsins. Forseti var nýlega í opinberri heimsókn í Mexíkó en þá lýsti forseti Mexíkós, Felipe Calderón, yfir eindregnum stuðningi við framboð Íslands.
Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Innlent Fleiri fréttir Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Sjá meira