Mótmælum vörubílstjóra lokið 28. mars 2008 13:07 MYND/Hafsteinn Ársælsson
Mótmælum vörubílstjóra og stuðningsmanna þeirra á tveimur fjölförnum stöðum í borginni er lokið og ók þeir fyrir stundu á brott og þeyttu bílflautur sínar. Talið er að samanlagt um hundrað atvinnubílstjóarar hafi safnast saman á stærstu gatnamótum landsins á mótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar annars vegar og í Ártúnsbrekku hins vegar og stöðvuðu umferð í hádeginu í um hálfa klukkustund. Með þessu vildu þeir láta í ljós óánægju sína með hátt olíuverð og álögur ríkisins á vörubílstjóra. Mikil samstaða virðist vera hjá hópnum en hluti hans var einnig í mótmælum í Ártúnsbrekku á fjórða tímanum í gær. Þá var umferð stöðvuð á leið út úr bænum en í þetta sinn stöðvuðu bílstjórar umferð í báðar áttir. MYND/Jóhann Fréttamaður Vísis var í Ártúnsbrekku. Þar gáfust farþegar í strætisvagni upp á að bíða og fóru út úr vagninum. Lögregla mætti svo á vettvang og tók niður númer bílanna sem tóku þátt í mótmælunum og í kjölfarið lauk þeim. Bæði á Miklubraut og í Ártúnsbrekku þeyttu bílstjórarnir flautur sínar þegar þeir óku af vettvangi. Bílstjórarnir munu þó hafa ekið í hægt upp Ártúnsbrekkuna áður en aðgerðunum lauk endanlega.Daníel G. Ingimarsson, einn þeirra sem tók þátt í mótmælunum í Ártúnsbrekku í dag, sagði bílstjóra myndu halda áfram mótmælum eftir helgi yrði ekki orðið við kröfu þeirra um fund með stjórnvöldum. „Við höfum mikið þol," sagði Daníel.Mikil leynd hvíldi yfir aðgerðum bílstjóranna þar sem þeir óttuðust að lögregla myndi stöðva aðgerðir þeirra áður en þeir færu af stað. Jón Viðar Matthíasson slökkvililiðsstjóri gagnrýndi í gær aðgerðir vörubílstjóranna og sagði þær ógna sjúkraflutningum á höfuðborgarsvæðinu. Bílstjórarnir þyrftu að láta vita af aðgerðunum.Páll Pálsson, einn af forsvarsmönnum nýstofnaðra hagsmunasamtaka vörubílstjóra, sagði stutt í frönsku aðferðina eins og hann orðaði það, en franskir mótmælendur hafa í gegnum tíðina meðal annars gripið til þess að sturta skítahlassi á tröppur opinberra stofnana. MYND/EgillMYND/EgillMYND/EgillMYND/EgillMYND/HafsteinnVörubílstjórar lokuðu umferð í báðar áttir í Ártúnsbrekku í dag.MYND/Jóhann
Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Bein útsending: Kynna þingmálaskrá vetrarins Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður Fleiri fréttir „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Bein útsending: Kynna þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Sjá meira