Olíuverðið komið vel yfir þolmörk útgerðarinnar 13. mars 2008 11:16
Stöðugar hækkanir á heimsmarkaðsverði olíu eru farnar að koma verulega illa við útgerðina í landinu. Sveinn Hjörtur Hjartarson hagfræðingur LÍÚ segir að verðið nú sé komið langt yfir þolmörk útgerðarinnar. Heimsmarkaðsverð á olíutunnunni fór yfir 110 dollara í gær. "Þetta þýðir að gasolíutonnið er nú komið í tæpa 1.000 dollara," segir Sveinn Hjörtur í samtali við Vísi. "Það þýðir að olíukostnaðurinn er kominn í um 20% en í eðlilegu árferði hefur hann legið á bilinu 7-8%." Sveinn Hjörtur segir að nokkuð vegi upp á móti þessum aukna kostnaði að afurðaverð hefur farið hækkandi jafnframt því að gengisþróunin frá áramótum hefur verið útgerðinni hagstæð. Einnig hafa útgerðirnar reynt að hagræða í rekstrinum eins og kostur er. "En það er ekki hægt að hagræða endalaust til að mæta þessu," segir Sveinn Hjörtur. Aðspurður um til hvaða ráða útgerðin geti gripið nefnir Sveinn Hjörtur meðal annars nýjar og orkusparandi vélar í skipin. "Auk þess má nefna að breyta yfir í veiðarfæri sem eru ekki eins orkuþurfandi," segir Sveinn Hjörtur. "Þar má nefna að æ fleiri gera nú út á línu í staðinn fyrir troll enda útheimtir línan mun minni orku en trollin. Á móti kemur að vísu aukinn kostnaður við beitu."
Mest lesið Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Innlent Hitamet slegið á Spáni um helgina Erlent Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Innlent Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Innlent Krefjast svara um mögulegar frekari árásir Erlent Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Innlent Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Erlent Þúsundir Norðmanna fengu fyrir mistök tilkynningu um að hafa unnið milljónir Erlent Fleiri fréttir Fundar með þingflokksformönnum Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Tugir missa vinnuna í sumar Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Múmínlundurinn verður Ævintýraskógur á meðan leyst er úr höfundarrétti Störf á landsbyggðinni, skortur á sérfræðiþekkingu kennara og óperugala Sektaður fyrir að vera á 101 kílómetra hraða í 101 Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Ekki gagnlegt að stilla fyrirtækjum upp gegn starfsfólki Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Skýrslutökum írsku lögreglunnar lokið Veðurstofan nýtir ofurtölvu til að herma eftir hraunflæði „Samfélagsleg ábyrgð þessa fyrirtækis virðist ekki vera nein“ Óhress innviðaráðherra, öryggis- og varnarmál og ofurtölva Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Ný kirkjuhandbók og kaldar kveðjur til ferðaþjónustunnar Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn „Langflestir Grindvíkingar búa utan Grindavíkurbæjar“ Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Sósíalistar deila um peninga og metþátttaka í ólöglegri baráttugöngu Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Sjá meira