Vilja frestun stórframkvæmda og Þjóðhagsráð 7. mars 2008 12:00
Þingmenn Vinstri - grænna vilja stykja gjaldeyrisvaraforða Seðlabankans, efla nýsköpun og fresta stóriðjuframkvæmdum og setja á fót svokallað Þjóðhagsráð til þess að koma á stöðugleika í efnahagsmálum. Þetta er meðal þess kemur fram í frumvarpi sem þingflokkurinn vill hyggst leggja fram á næstunni og ná aðgerðirnar til áranna 2008 og 2009. Frumvarpið var kynnt í morgun og er í fjórum liðum. Lagt er til að Seðlabankinn verði styrktur með því að auka gjaldeyrisvaraforðann um allt að 80 milljarða og styrkja eigið fé hans til viðbótar um allt að 40 milljarða með innlendu skuldafjárútboði. Þá bjóði ríkisstjórnin út sérstök sparnaðarskuldabréf á innlendum markaði að hámarki tvær milljónir króna á hvern einstakling til minnst 5 ára í senn og verði vaxtatekjur undanþegnar fjármagnstekjuskatti. Þá vill flokkurinn bæta stöðu illa settra sveitarfélaga með því að verja til þeirra allt að fimm milljörðum króna gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Sérstaklega verði hugað að aðgerðum sem skapa konum störf, vinna gegn kynbundnum launamun og kyngreindum búferlaflutningum. Enn fremur er lagt til að þremur milljörðum verði varið í Nýsköpunarsjóð, Tækniþróunarsjóð og til atvinnuþróunarfélaga auk ferðaþjónustu og uppbyggingar þjóðgarða. Þá verði stóriðju- og stórframkvæmdum frestað um sinn með því að kaupa rannsóknarniðurstöður og greiða fyrirtækjum útlagðan undirbúningskostnað. Einnig verði heimilt að stöðva leyfisveitingar innan tilgreindra tímamarka sé það nauðsynlegt til að ná efnahagslegum stöðugleika og varðveita hann. Skoða hvort endurreisa eigi Þjóðhagsstofnun Í fjórða lagi vilja Vinstri - græn setja á stofn sérstakt Þjóðhagsráð, skipað fulltrúm þingflokka og hagsmunaaðila, sem veitir stjórnvöldum ráðgjöf, metur framvindu og horfur í þjóðarbúskapnum og gefur mánaðarlega álit um stöðu mála. Þjóðhagsráð á að skoða hvort ástæða sé til að endurreisa Þjóðhagsstofnun eða hliðstæða fagstofnun og hvernig styrkur lífeyrissjóðanna megi best nýtast innan hagkerfisins, t.d. í samhengi við framtíðarskipan húsnæðismála, þó þannig að lífeyrissparnaður landsmanna sé ætíð tryggður eins og best er mögulegt. Þá vill flokkurinn verja allt að 100 milljónum króna til að efla starfsemi Fjármálaeftirlitsins, einkum á sviði áhættugreiningar og áhættuprófana fjármálafyrirtækja.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira