Vikið úr stjórn vegna viðtals 6. mars 2008 22:04
Forstjóra Orkuveitu Húsavíkur hefur verið vikið úr stjórn orkufyrirtækisins Þeistareykja. Ein tilgreindra orsaka er að hann veitti Stöð 2 viðtal í óþökk yfirmanns. Á síðasta hluthafafundi í stjórn Þeistareykja ehf var aðeins eitt efni á dagskrá, Hreini Hjartarsyni forstjóra Orkuveitu Húsavíkur var fyrirvaralaust vikið úr stjórn. Hreinn, sem hefur verið helsti talsmaður stóriðju á Húsavík, fékk einnig svokallaða ráðgerða áminningu hjá vinnuveitanda sínum, Norður-Þingi. Það var fyrir óásættanlega framkomu og mun þar hafa vegið þungt að hann veitti Stöð 2 viðtal á dögunum vegna vinnslu fréttar um álverskapphlaup milli Húsvíkinga og Suðurnesjamanna. Bæjarstjóri Norður-Þings, Bergur Elías Ágústsson, reyndi fyrir viðtalið að koma í veg fyrir að það yrði tekið og sagði fréttamanni að Hreinn hefði ekki leyfi til að tjá sig. En Hreinn ákvað að tjá sig sem framkvæmdastjóri Þeistareykja, en þeirri stöðu gegndi hann einnig á þessum tíma. Þetta þótti yfirmanni hans undanbragð og þess vegna er honum vikið úr stjórn. Einnig spila inn í brottvikninguna ummæli hans áður í fjölmiðlaviðtölum auk þess sem athugasemd hefur verið gerð við reikning á hans vegum. Hreinn vildi ekki tjá sig um málið í dag að öðru leyti en því að hann staðfestir fyrirvaralausan brottrekstur sinn. Heimildir fréttastofu herma að hann hafi farið fram á að áminningin verði dregin til baka enda hafi hann ekkert brotið af sér. Einn heimildamanna fréttastofu sagði að málið sýndi titringinn og togstreituna í baráttunni um stóriðjur þar sem ein vanhugsuð ummæli gætu sett mál í uppnám. Landsvirkjun, Norðurorka, Orkuveita Húsavíkur, Aðaldælahreppur og Þingeyjarsveit eiga Þeistareyki ehf en markmið félagsins er að vinna að orkuöflun fyrir stóriðju á Norðurlandi. Franz Árnason stjórnarformaður Þeistareykja vildi það eitt segja um málið að hann gæti ekki haft skoðun á því þótt einn hluthafi hafi ákveðið að gera breytingu í stjórn.
Mest lesið Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Innlent Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Erlent Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Fleiri fréttir Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Sjá meira