„Ákveðin formsatriði ekki uppfyllt“ 6. mars 2008 16:52 Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ.
Geir Þorsteinsson formaður KSÍ segist fagna skýrslu Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar vegna framkvæmda við Laugardalsvöll og hann segir hana mjög gagnlega. Geir átti sæti í byggingarnefndinni sem skipuð var í tengslum við bygginguna en sú nefnd hélt aðeins tvo formlega fundi. Verkið fór mörghundruð milljónir fram úr áætlun. Eggert Magnússon, fyrrverandi formaður KSÍ var formaður nefndarinnar en hann segist ekki vilja tjá sig um málið fyrr en hann hefur séð skýrsluna. Hann svarar því ekki hvers vegna aðeins var boðað til tveggja funda.„Það er mjög góð spurning," segir Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, aðspurður hvers vegna ekki hafi verið haldnir fleiri fundir í nefndinni. „Það voru mistök miðað við það sem fram kemur í skýrslunni. Við munum skoða þessi mál og taka ábyrgð á því sem á okkur stendur," segir Geir. Hann segir skýrsluna gagnlega. „Hún leiðir í ljós að þeim fjármunum sem um var að ræða var varið í verkið. Hins vegar sýnir hún einnig að ákveðin formsatriði voru ekki uppfyllt."Í skýrslunni kemur meðal annars fram að í apríl 2006 hafi KSÍ kynnt Framkvæmdasviði borgarinnar uppfærða kostnaðaráætlun við verkið. Síðari fundurinn í byggingarnefnd var haldinn 3. apríl 2006 og því segir skýrsluhöfundur að ljóst hafi mátt vera á þeim fundi að kostnaðurinn við verkið stefndi fram úr áætlun. Það var hins vegar ekki rætt á fundinum. Geir segist ekki tilbúinn til að svara því hvers vegna þetta hafi ekki verið rætt á fundi byggingarnefndarinnar. Hann segir hins vegar að allir sem að málinu komu hafi vitað af því að það stefndi í aukinn kostnað. Það vissu það allir á þeim tíma," segir Geir.Eggert Magnússon.Eggert Magnússon, fyrrverandi formaður KSÍ og formaður Byggingarnefndarinnar segist ekki hafa séð skýrslu Innri endurskoðunar og því geti hann ekki tjáð sig um málið. Hann vildi heldur ekki svara því hvernig á því stóð að hann sem formaður byggingarnefndarinnar boðaði einungis til tveggja funda á öllum framkvæmdatímanum. „Allt sem KSÍ gerði í þessu máli var gert á sem hagkvæmastan hátt og hægt var á hverjum tíma," segir Eggert í samtali við Vísi. „Við gerðum allt eftir bestu getu og eitthvað pólitískt írafár kemur mér því mjög á óvart." Eggert segist vera mjög stoltur af stúkunni. „Við náðum í fullt af peningum erlendis frá og frá ríkinu og við unnum þetta mál af sömu vandvirkni og við gerðum þegar hin stúkan var byggð við völlinn. Í því verkefni var okkur hrósað í hástert svo þetta mál núna kemur mér á óvart."
Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri fréttir Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í Miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu