„Þeir ætluðu að drepa þessa lögreglumenn" 28. febrúar 2008 16:30 Miðbær Reykjavíkur. Árásin varð á Laugaveginum þann 11.janúar sl.
Ungur karlmaður sem varð vitni að árás fjögurra Litháa á rannsóknarlögreglumenn segir greinilegt að mennirnir hafi ætlað að taka þessa ákveðnu lögreglumenn fyrir. Árásin hafi því ekki verið handahófskennd. Vitnið sem er ungur karlmaður hringdi inn á X-ið 977 fyrr í dag en þá var hann á leið niður í Héraðsdóm til þess að bera vitni í málinu. Aðalmeðferð fór fram í dag. Vitnið var í bíl á eftir BMW bifreiðinni sem Litháarnir stukku út úr. „Ég sé að lögreglumenn eru á Laugaveginum að leita á einhverju fólki. Þeir voru óeinkennisklæddir en voru með lögreglumerki og tækjabelti þannig að augljóst var að þarna voru lögreglumenn," sagði maðurinn en skyndilega stoppar bifreiðin fyrir framan hann. „Þá rjúka þrír til fjórir gaurar og hjóla beint í lögreglumennina. Þetta voru ekki nein vettlingatök og er einn hamraður en annar nær að víkja sér frá. Einn er tekinn niður og það er trampað á honum," sagði maðurinn og nefnir að lögreglan hafi beitt táragasi til þess að hafa hemil á mönnunum. „Þeir ætluðu að drepa þessa lögreglumenn." Hann segir nokkuð ljóst að árásin hafi verið skipulögð. Þarna hafi ekki verið um handahófskennda árás og þeir hafi greinilega ætlað að taka þessa lögreglumenn fyrir. „Ég stóð bara þarna og yppti öxlum, vissi ekkert hvað ég átti að gera. Þeir voru í mjög annarlegu ástandi og það þurfti mikið til þess að stoppa þá," sagði maðurinn og bætti við að lögreglan hefði ekki náð að hafa neina stjórn á mönnunum fyrr en fleiri lögreglubílar mættu þeim til aðstoðar. Aðspurður um hvort hann teldi líklegt að þessir menn séu herþjálfaðir sagði hann. „Það voru tveir þarna mjög ungir en ég gæti trúað að þeir væru herþjálfaðir, þetta voru engir aumingjar. Lögreglan átti allavega ekki roð í þá." Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni með því að smella hér. Sjá einnig:Lögreglumennirnir fengu áfallahjálp eftir árás Litháanna
Mest lesið Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Fleiri fréttir Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í Miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu