Innlent

Lögreglumennirnir fengu áfallahjálp eftir árás Litháanna

Árásin átti sér stað fyrir utan barinn Monte Carlo á Laugavegi.
Árásin átti sér stað fyrir utan barinn Monte Carlo á Laugavegi.

Aðalmeðferð í máli þriggja Litháa sem sakaðir eru um árás gegn fjórum rannsóknarlögreglumönnum fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þrír Litháar eru ákærðir en þeir neita allir sök í málinu. Segjast ekki hafa gert sér grein strax að um lögreglumenn hafi verið að ræða. Lögreglumennirnir fengu áfallahjálp eftir árásina.

Fjórir rannsóknarlögreglumenn voru við fíkniefnaeftirlit á Laugaveginum fyrir utan barinn Monte Carlo aðfararnótt 11.janúar síðast liðin þegar árásin varð.

Lögreglumennirnir höfðu afskipti af tveimur karlmönnum og konu sem er góðkunningi lögreglunnar þegar ung stúlka kemur að þeim með bros á vör. Hún spyr hvort þeir séu að ráðast á stúlkuna og í sömu andrá fær einn lögreglumannanna þungt högg á vinstra gagnauga.

Lögreglumennirnir öskra þá að þeir séu lögreglumenn og sýna skilríki sem héngu um háls þeirra. Fljótlega koma aðrir þrír Litháar út út úr BMW bifreið og ráðast að mönnunum. Sá sem veitti lögreglumanninum höggið slær annan lögreglumann í vinstra kinnbein.

Þrír þessara Litháa ráðast því næst á þriðja lögreglumanninn og kýla hann ítrekað svo hann fellur í jörðina. Þar sparka þeir í manninn en sá sem hafði sig mest í frammi hleypur í burtu.

Lögreglumennirnir kalla þá eftir aðstoð og elta manninn upp Laugaveginn. Hann er síðan handtekinn í porti ofar á Laugaveginum.

Í átökunum grípa lögreglumennirnir til táragass og nota kylfur til þess að hafa hemil á mönnum. Þrír mannanna eru handteknir á staðnum en tveir daginn eftir.

Litháinn sem fyrstur kom á vettvang sagði fyrir dómi að hann hefði ekki slegið neinn og neituðu allir mennirnir sök í málinu. Hann sagðist vera að vernda vinkonu sína sem rauk út úr bílnum og hefði ýtt við lögreglumönnunum þess vegna.

Stúlkan sagði hinsvegar í lögregluskýrslu að maðurinn hefði slegið lögreglumanninn. „....áberandi fast svo það minnti á rothögg í boxi."

Eftir að maðurinn var handtekinn var farið með hann á lögreglustöð. Þar segir hann að m.a. hafi köldu vatni verið helt yfir hausinn á sér. Hann sagðist hafa verið veikur og því hefði hann einungis drukkið einn bjór um kvöldið. Hinsvegar mældist 0,67 prómill í blóði hans einum og hálfum tíma eftir handtökuna.

Í máli eins Litháanna kom fram að þeir hefðu bæði misst vinnu og húsnæði í kjölfar árásarinnar. Hann hafi komið hingað til lands í maí 2006 og ætlað að setjast hér að þar sem honum hafi líkað vel við landið.

Lögreglumennirnir voru í miklu áfalli eftir árásina og töluðu um mikinn ótta innan fjölskyldunnar. Þeir hittu meðal annars geðhjúkrunarfræðing sem þeir segja hafa hjálpað sér mikið.

Sjá einnig:

Héraðsdómur féllst á kröfu um gæsluvarðhald

Litháar í farbanni til 1.febrúar

Staðfest farbann vegna árása á lögreglumenn

Litháarnir bera af sér sakir í Héraðsdómi


Þrír ákærðir fyrir að ráðast á fíkniefnalögreglumenn



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×