Tekið eitt og hálft ár að ganga frá einföldum málum 28. febrúar 2008 12:13
Það hefur tekið yfirlögregluþjóninn í Skagafirði allt að eitt og hálft ár að ganga frá einföldum málum, segir sýslumaður í áminningarbréfi. Út í hött, segir lögmaður yfirlögregluþjóns. Stöð 2 sagði frá því í gær að sýslumaðurinn í Skagafirði, sem jafnframt er lögreglustjóri, hefði veitt Birni Mikaelssyni, yfirlögregluþjóni á Sauðárkróki, áminningu í sex liðum. Brot hans eru eftirfarandi samkvæmt gögnum frá sýslumanni: 1) Áminntur fyrir vanrækslu í starfi með því að hafa ítrekað vanrækt að framfylgja fyrirhuguðum átaksverkefnum á sviði umferðarmála. 2) Áminntur fyrir að tala óvarlega í sjónvarpsviðtali sem birtist á Rúv 5. október síðastliðinn, þar sem skilja mátti ummæli hans þannig (að mati sýslumanns) að ökumenn gætu ekið of hratt í umdæminu án þess að verða beittir viðurlögum. 3) Áminntur fyrir að hafa ekki sinnt starfskyldum sínum með því að sjá til þess að rannsóknum mála hjá lögreglu yrði lokið innan eðlilegs tíma. Jafnframt segir: „Einföld mál voru allt að einu og hálfu ári í meðförum lögreglu." 4) Áminntur fyrir óhæfilega framkomu með því að hafa gefið tilteknum lögreglumanni vilyrði um fyrirhugaðan framgang hans í starfi og launahækkun án samþykkis sýslumanns. 5) Áminntur fyrir óhæfilega og ósæmilega framkomu með því að tjá sýslumanni að tiltekinn lögreglumaður hefði færst undan að sinna lögmætum fyrirmælum yfirlögregluþjóns, en nokkur vitni voru hins vegar að því gagnstæða, segir sýslumaður. Og í sjötta lagi er yfirlögregluþjónn áminntur fyrir að hafa hringt í háttsettan starfsmann Ríkislögreglustjóra og talað mjög niðrandi um lögreglumann á Sauðárkróki sem sýslumaður hafði mælt með í stöðu varðstjóra. Björn Mikaelsson yfirlögregluþjónn vill ekki tjá sig um málið en lögmaður hans, Gylfi Thorlacius, segir að dómstólaleiðin verði farin til að ógilda áminninguna. Hann segist hafa starfað fyrir Landssamband lögreglumanna í 25 ár og hafi aldrei séð jafn ómálefnalega áminningu. Meint brot vegna umferðarátaksins sé út í hött og aðrir liðir áminningarinnar vægast sagt sérkennilegir. Miklar væringar hafa verið innnan lögregluliðsins á Sauðárkróki undanfarið og verður nánari umfjöllun um stöðuna þar í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Fleiri fréttir LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli Sjá meira