Ýja að stuðningi við sjálfstæðiskröfu Suður-Ossetíu og Abkasíu 15. febrúar 2008 13:42 Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands. MYND/AP
Rússnesk yfirvöld gáfu til kynna í dag að þau muni hugsanlega styðja kröfu héraðanna Suður-Ossetíu og Abkasíu um aðskilnað frá Georgíu ef Vesturveldin lýsa yfir stuðningi við Kosovo. Talið er hugsanlegt að Kosovo-Albanar lýsi yfir sjálfstæði frá Serbíu á næstu dögum en mál héraðsins hefur verið bitbein Rússa og Serba annars vegar og vestrænna ríkja hins vegar undanfarin ár. Reiknað er með að bæði Bandaríkjamenn og Evrópusambandið muni viðurkenna Kosovo sem sjálfstætt ríki þegar og ef yfirlýsingin kemur. Suður-Ossetía og Abkasía tilheyra nú Georgíu og í tilkynningu frá utanríkisráðuneyti Rússlands segir að þarlend yfirvöld verði að taka tillit til yfirlýsinga Kosovo-Albana í málefnum héraðanna tveggja. Sergei Lavrov, utanríksráðherra Rússlands hitti nýverið leiðtoga Suður-Ossetíu og Abkasíu í Moskvu en mikill stuðningur er við aðskilnað frá Georgíu í báðum héruðunum. Stjórnvöld í Georgíu saka hins vegar Rússa um að styðja héruðin í baráttu sinni til þess að grafa undan tilraunum Georgíumanna til að byggja upp sterkt, sjálfstætt ríki. Því hafna Rússar.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Enginn meirihluti í Grindavík Innlent Fleiri fréttir Tímasetning Canvas-árásarinnar engin tilviljun „Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Sjá meira