Innlent

Ekki ákveðið hvort bólusetja eigi gegn leghálskrabba

Heilbrigðisráðherra segir enga ákvörðun liggja fyrir um hvort bólusetja skuli gegn leghálskrabba hér á landi. Hann segir að þrátt fyrir að í ljós hafi komið að það væri fjárhagslega hagkvæmt eigi eftir að ákveða hvort peningum sé betur varið í önnur verkefni.

Heilbrigðisráðherra skipaði starfshóp sem kannaði kostnað og hagkvæmni við að bólusetja íslenskar stúlkur gegn leghálskrabbameini. Eins og fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá þá skilaði hópurinn niðurstöðum sínum til heilbrigðisráðherra í síðustu viku en hún var að slík bólusetning borgi sig fjárhagslega og geti komið í veg fyrir rúmlega heilming tilfella hér á landi.

Guðlaugur Þór segir verkefnið afar brýnt og að það verði skoðað ásamt fleirum sambærilegum fyrirbyggjandi aðgerðum sem sé hluti af heilsustefnu ríkisins. Hann segir ekki hægt að segja til um hvenær ákvörðun verður tekin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×