SI greiðir 2,5 milljóna króna sekt til Samkeppniseftirlitsins 14. febrúar 2008 10:07 Jón Steindór Valdimarsson er framkvæmdastjóri SI.
Samtök iðnaðarins og Samkeppniseftirlitið hafa gert sátt í máli tengdu því þegar virðisaukaskattur og vörugjöld voru lækkuð 1. mars síðastliðinn. Greiða samtökin 2,5 milljóna króna sekt til eftirlitsins. Fram kemur í tilkynningu frá Samtökum iðnaðarinnar að þau hafi beitt sér fyrir því að lækkunin skilaði sér frá fyrsta degi til neytenda. Samkeppniseftirlitið segi hins vegar að sú aðferðafræði, sem var notuð, hafi falið í sér brot á hlutlægum reglum samkeppnislaga en þá skipti ásetningur eða afleiðing brots engu máli við mat á því hvort brot hafi átt sér stað eða ekki. Sátt hafi náðst í málinu en Samtök iðnaðarins segja að hún feli ekki í sér að samtökin hafi haft ásetning til þess að brjóta lög, né heldur að þau eða félagsmenn þeirra hafi haft af aðgerðunum ólögmætan ágóða, eða að skattalækkanirnar hafi ekki skilað sér að fullu til neytenda. Málavextir eru þeir að Samtök iðnaðarins beittu sér fyrir því að gripið yrði til samstilltra aðgerða milli framleiðenda og verslana um að setja kjöt og osta, sem eru verðmerkt hjá framleiðendum, í verslanir frá og með 20. febrúar með lægri sköttum, þrátt fyrir að þurfa að standa ríkissjóði skil á hærri sköttum af sömu vörum til 1. mars. Tapinu, sem óhjákvæmilega varð af þessu, var skipt milli framleiðenda og verslana en bæði neytendur og ríki fengu sitt að sögn Samtakanna. Frá þessu var sagt í fjölmiðlum fyrir 1. mars og í kjölfarið hóf Samkeppniseftirlitið rannsókn málsins. Niðurstaða rannsóknarinnar var að með þessum samstilltu aðgerðum hefðu Samtök iðnaðarins brotið samkeppnislög og hindrað samkeppni.„Fyrir SI hefur eingöngu vakað að tryggja hag neytenda með aðgerðum sínum og SI líta ekki svo á að nein samkeppnistækifæri hafi glatast. SI fallast hins vegar á að í skilningi samkeppnislaga hafi verið um samstilltar aðgerðir að ræða. Reglurnar eru fortakslausar og hlutlægar á þann hátt að ásetningur og afleiðingar samstilltu aðgerðanna skipta ekki máli við mat á lögmæti þeirra. Eftir á að hyggja telja SI að rétt hefði verið að leita eftir undanþágu SE fyrirfram fyrir hinum samstilltu aðgerðum. Það hefði hins vegar engu breytt um efnisatriði málsins, þ.e. að lækkun virðisaukaskatts og vörugjalda af ostum og kjötvörum var skilað að fullu til neytenda. Það var einungis óhjákvæmilegu tapi sem var skipt milli framleiðenda og verslunar," segir í tikynningu Samtaka iðnaðarinsÞar segir einnig: „Samtök iðnaðarins hafa ekki og munu ekki standa fyrir neins konar aðgerðum sem fela í sér að félagsmenn hafi, með ólöglegum eða óeðlilegum hætti, áhrif á samkeppni eða verð til neytenda. Þau munu því herða á starfsreglum sínum til þess að tryggja enn frekar að slíkt muni ekki gerast."
Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi Sjá meira