Mál Vestmannaeyjarbæjar á hendur olíufélögum þingfest í næstu viku 13. febrúar 2008 14:57 MYND/Vilhelm
Mál Vestmannaeyjabæjar á hendur stóru olíufélögunum þremur vegna tjóns sem bærinn telur sig hafa orðið fyrir vegna samráðs þeirra, verður þingfest í næstu viku. Hins vegar er beðið eftir niðurstöðu Hæstaréttar í máli manns sem höfðaði mál á hendur félögunum áður ákvörðun verður tekin varðandi málarekstur um 150 einstaklinga sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni vegna samráðsins. Eins og fram kom í síðustu viku dæmdi Hæstiréttur Ker, Olís og Skeljun til þess að greiða Reykjavíkurborg og Strætó samtals nærri áttaíu milljónir króna í bætur vegna tjóns sem borgin og Strætó urðu fyrir vegna ólöglegs samráðs félaganna á níunda áratug síðustu aldar. Fram hefur komið að Vestmannaeyjabær hyggist einnig sækja rétt sinn gagnvart félögunum og er það vegna samstilltra aðgerða olíufélaganna við útboð Vestmannaeyjarbæjar árið 1997 vegna eldsneytiskaupa. Að sögn Steinars Þórs Guðgeirssonar, lögmanns Vestmannaeyjarbæjar, verður mál bæjarins þingfest á þriðjudag og hljóðar bótakrafan með vöxtum upp á um 30 milljónir króna. Steinar Þór telur að mál Reykjavíkurborgar hafi fordæmisgildi fyrir mál Vestmannaeyjarbæjar enda hafi bæði byggst á útboði og fyrir liggi minnisblað og yfirlit um það að olíufélögin þrjú hafi samið um greiðslur sín á milli vegna útboðsins. Öðru máli gegnir um mál sem Steinar Þór er einnig með, en það höfðaði Sigurður Hreinsson, húsasmiður á Húsavík, á hendur Keri. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að því að Keri bæri að greiða Sigurði um 15 þúsund krónur í bætur vegna tjóns sem Sigurður hafði orðið fyrir vegna samráðs olíufélaganna. Steinar Þór segir dóm í máli Reykjavíkurborgar ekki hafa jafn skýrt fordæmisgildi fyrir einstaklinga og fyrir Vestmannaeyjarbæ og vísar meðal annars til þess að sjaldan sé um útboð að ræða vegna einstaklinga. Mál Sigurðar verður tekið fyrir í Hæstarétti um miðjan apríl. Steinar Þór segir að beðið verði niðurstöðu í því áður en ákveðið verði hvað gert verði í málum um 150 einstaklinga sem Lögfræðistofa Reykjavíkur hefur á sinni könnu, en þeir telja sig hafa orðið fyrir tjóni vegna samráðs olíufélaganna.
Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Innlent Fleiri fréttir Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði Sjá meira