Framtíð Nasa rædd í skipulagsráði 13. febrúar 2008 13:13
Óskar Bergsson, áheyrnarfulltrúi framsóknarmanna í skipulagsráði segir að málefni Nasa við Austurvöll hafi verið til umræðu á fundi skipulagsráðs í dag án þess að niðurstaða væri tekin í málinu. Hugmyndir eru uppi um að rífa salinn sem hýsir tónleikastaðinn í dag en gert er ráð fyrir að endurbyggja hann að nýju á sama stað, eða í kjallara þeirrar byggingar sem á að reisa á reitnum. Óskar segir að á fundinum hafi menn verið beðnir um að velta því fyrir sér með hvaða hætti best sé að gera þetta og segir hann almenna sátt í nefndinni um að taka öll sjónarmið til athugunar. Þegar fréttist af því að til stæði að rífa Nasa í gær mótmæltu margir og Kári Sturluson tónleikahaldari fór þar fremstur í flokki. Óskar ítrekaði að ekki stæði til að rífa gamla húsið sem stendur við Austurvöllinn og kennt er við Kvennaskólann en að hugmyndin sé að rífa bakhúsið sem hýsir salinn sjálfan. Hann nefndi einnig að menn væru sammála um mikilvægi þess að þarna komi þá salur sem væri með gluggum sem vísa út í Vallarstrætið, sem tengir saman Austurvöll og Ingólfstorg og er í dag með dimuustu strætum borgarinnar. Að sögn Óskars hefur engin ákvörðun verið tekin í málinu, hvort salurinn verði endurbyggður í upprunalegri mynd á sama stað, eða hvort hann verði endurbyggður neðanjarðar. „Þetta eru bara útfærsluatriði sem menn eiga eftir að skoða," sagði Óskar Bergsson.
Mest lesið Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Innlent Reglulega tilkynnt um þjófnað á vatni Innlent Svona svara stjórnvöld ákalli um bundið slitlag á sveitavegi Innlent Takmarka fjölda nemenda utan EES Innlent Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Erlent Telja brotið gegn réttindum barna og íhuga málaferli Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Mikill meirihluti ánægður með að Ísland taki ekki þátt Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Fleiri fréttir Staðin að því að stinga inn á sig snyrtivörum Takmarka fjölda nemenda utan EES Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Svona svara stjórnvöld ákalli um bundið slitlag á sveitavegi Mikill meirihluti ánægður með að Ísland taki ekki þátt Reglulega tilkynnt um þjófnað á vatni Pollróleg þó starfsáætlun þingsins hafi verið felld úr gildi Telja brotið gegn réttindum barna og íhuga málaferli Ragnhildur nýr framkvæmdastjóri Píeta samtakanna Norðurþing og Heidelberg undirrita viljayfirlýsingu vegna uppbyggingar á Bakka Skoða málsókn vegna látinna sona og hagstæðustu jólainnkaupin Vestmannaeyjastrengir 4 og 5 teknir í rekstur Grunaður um manndráp á Kársnesi Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Stofnunum fækkar um tuttugu Ísland tekur höndum saman með Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Skilaboð Vestfirðings til stjórnvalda ekki útvarpshæf eftir 50 milljóna króna tjón Höfðu haldið til í ruslageymslunni dagana á undan Óska eftir myndefni frá Kársnesi vegna mannslátsins „Gjörsamlega samfélagslega ótækt“ að hafna kröfunni „Grafalvarlegt“ að Ísland fari gegn vísindalegri ráðgjöf Laxar struku úr landeldi í Eyjum Starfsáætlun þingsins kippt úr sambandi Faldi töflurnar í nammipoka Ekið á gangandi vegfaranda á Sæbraut Makríllinn enn hitamál og áfall í fiskeldi í Tálknafirði Hjálmar gefur ekki kost á sér Eyjamenn ósáttir við nýbirta samgönguáætlun Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Sjá meira