Komu tveimur frönskum skíðagönguköppum til aðstoðar 12. febrúar 2008 22:40
Hjálparsveitin Dalbjörg í Eyjafirði og Björgunarsveitin Súlur frá Akureyri komu í dag tveimur frönskum skíðagönguköppum til aðstoðar sem hugðust ganga þvert yfir hálendið. Fram kemur á heimasíðu Dalbjargar að skíðagöngumennirnir hafi lagt af stað inn á hálendið ofan Eyjafjarðar í gær og ætluðu þeir að ganga suður yfir það. Þegar þeir vorku komnir upp að Urðarvötnum urðu þeir að tjalda og halda kyrru fyrir þar sem vonskuveður var á svæðinu. Björgunarsveitarmenn úr Dalbjörgu voru kallaðir út um hálftvö í dag þar sem skíðagöngumennirnir treystu sér ekki út úr tjaldinu. Voru Súlumenn þá að hafa sig til og klukkutíma síðar voru alls tíu manns frá hvorri sveit á fjórum jeppum, fimm vélsleðum og snjóbíl komnir að Hólsgerði og héldu inn eftir og upp Vatnahjallann. Sleðamenn fundu svo skíðagöngumennina á miðjum Urðarvötnum og fluttu þá í bílana sem voru að koma upp Vatnahjallann. Þeir voru þá orðnir ískaldir eftir veruna í tjaldinu en hresstust fljótlega eftir að þeir komu í heitan bíl. Björgunarliðið hélt niður til byggða með mennina og var komið klukkan 17 í Grænuhlíð þar sem húsráðendur voru með heitt á könnunni og bakkelsi handa liðinu.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Enginn meirihluti í Grindavík Innlent Fleiri fréttir Tímasetning Canvas-árásarinnar engin tilviljun „Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Sjá meira