Segir orð Vilhjálms aumkunarverð 12. febrúar 2008 12:32
Yfirlýsingar Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar um að borgarfulltrúar Samfylkingar hafi ekki axlað ábyrgð í REI málinu, eru aumkunarverðar. Þetta segir Sigrún Elsa Smáradóttir borgarfulltrúi Samfylkingar sem var varamaður í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson oddviti sjálfstæðismanna sagði á blaðamannafundinum í Valhöll í gær að það væru fleiri sem ekki hefðu axlað ábyrgð þegar samruni REI og Geysis Green Energy var samþykktur síðastliðið haust. Á fundinum sagði Vilhjálmur að fjölmiðlamönnum væri tíðrætt um að axla ábyrgð. Hann teldi sig hafa gert það og myndi halda áfram að gera það. Spurði hann hvort aðrir hefðu axlað ábyrgð og benti á að varamaður Dags B. Eggertssonar í stjórn Orkuveitunnar, Sigrún Elsa Smáradóttir, hefði samþykkt samkomulagið án athugasemda Sigrún Elsa Smáradóttir gefur lítið fyrir yfirlýsingar Vilhjálms. „Ég stóð ásamt Svandísi Svavarsdóttur að tillögu á þessum stjórnar- og eigendafundi sem gekk út á það að fresta málinu. Hann felldi þá tillögu og með því var knúin fram atkvæðagreiðsla um málið. Á þeim forsendum og miðað við þá kynningu sem við höfðum fengið þá var þessi samruni mjög æskilegur að mörgu leyti enda hafði veigamiklum atriðum málsins verið haldið leyndum fyrir kjörnum fulltrúum eins og nú hefur komið fram og virðist Vilhjálmur sjálfur hafa tekið þátt í því," segir Sigrún Elsa. Því séu orð Vilhjálms í gær aumkunarverð tilraun af hans hálfu.
Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Innlent Fleiri fréttir Leita enn að meintum geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Sjá meira