Vilhjálmur situr sem fastast - í bili 10. febrúar 2008 19:30
Allt bendir til þess að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson víki ekki til hliðar á næstunni sem oddviti sjálfstæðismanna í borginni. Ekki er þó víst að hann taki við borgarstjórastólnum að ári. Algjör þögn ríkir innan borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna og meðal forystumanna flokksins um stöðu og framtíð Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar sem oddvita. Aðeins hefur náðst í einn borgarfulltrúa í dag, Kjartan Magnússon, sem vildi þó ekki segja annað um málið en að Vilhjálmur njóti enn trausts innan flokksins. Geir H. Haarde vildi ekki tjá sig um málið. Ekki hefur náðst í Vilhjálm né aðra borgarfulltrúa þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru margir sjálfstæðismenn á þeirri skoðun að Vilhjálmur eigi að víkja. Vonast er til þess að hann taki sjálfur frumkvæði í því máli. Vilhjálmur hefur íhugað stöðu sína um helgina og meðal annars rætt við Geir H. Haarde í því samhengi. Samkvæmt heimildum fréttastofu er öruggt að Vilhjálmur muni sitji áfram sem oddviti flokksins. Þetta mun þó vera tímabundin lausn samkvæmt sömu heimildum og mögulegt að hann endurmeti stöðu sína eftir einhvern tíma. Því er ekki víst að hann taki við borgarstjórastólnum aftur að ári. Staðan er nokkuð snúin enda óvíst hvaða áhrif þetta kann að hafa á meirihlutasamstarfið í borgarstjórn. Ekki er víst að nýjum oddvita Sjálfstæðisflokksins hugnist áframhaldandi samstarf við Ólaf F. Magnússon. Ólafur F. Magnússon borgarstjóri vildi þó ekki tjá sig um málið þegar fréttastofa hafði samband við hann í morgun.
Mest lesið Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Erlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Hækka hitann í Breiðholtslaug Innlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Innlent Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Erlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar Erlent Fleiri fréttir Engin breyting á trúfélagsskráningu landsmanna Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Hækka hitann í Breiðholtslaug Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Sjá meira