Ráðherra á minkaskinnsuppboði í Danmörku 8. febrúar 2008 16:40 Sigurgeir Þorgeirsson, Einar K. Guðfinnsson og Torben Nielsen.
Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Sigurgeir Þorgeirsson ráðuneytisstjóri voru í vikunni viðstaddir uppboð á minkaskinnum hjá uppboðshúsinu Kopenhagen Fur í Danmörku. Fram kemur í tilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu að margar gerðir skinna hafi verið til sölu, meðal annars karakul lambaskinn, marðarskinn, refaskinn og minkaskinn sem er langstærsti hlutinn. Að þessu sinni voru 3,4 milljónir minkaskinna boðnar upp, þar af tæplega tíu þúsund íslensk. Þá kemur fram í tilkynningunni að mjög gott verð hafi fengist fyrir skinnin, eða um 3400 krónur fyrir skinnið að meðaltali sem sé um þrjátíu prósentum hærra verð en á síðasta uppboði Kopenhagen Fur sem haldið var í desember.„Hækkunin kom mönnum ánægjulega á óvart en skýringarinnar er líklegast að leita í miklum kuldum í Rússlandi, Kína og á fleiri mikilvægum skinnamörkuðum," segir í tilkynningunni.Ráðherra átti fund með Torben Nielsen, framkvæmdastjóra uppboðshússins, og þar kom fram að sú mikla aukning sem sögð hefur verið á skinnaframleiðslu Kínverja er orðum aukin. „Því er minni ástæða til að óttast þá miklu samkeppni sem talin var yfirvofandi. Það, ásamt þessari góðu sölu núna, eykur mönnum bjartsýni á framtíðina enda mátti glöggt merkja að brúnin léttist á mörgum loðdýraræktandanum á uppboðinu," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Innlent Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Erlent Fleiri fréttir Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um varðandi samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Sjá meira