Kanna hvort Fischer hafi verið kvæntur 22. janúar 2008 12:47
Hugmyndin um að Bobby Fischer yrði grafinn í þjóðargrafreit á Þingvöllum var borin undir ekkju hans, Miyko Watai. Hún hafnaði hins vegar hugmyndinni með þeim orðum að það hefði ekki verið vilji Fischers og valdi fremur útför í kyrrþei. Fulltrúi ættingja Fischers í Bandaríkjunum er kominn til landsins og hefur ráðið sér lögfræðing til að fara yfir öll lagaatriði, meðal annars hvort Fischer hafi í raun verið kvæntur. Ákvörðun um hvernig staðið var að útför Bobby Fischers í Laugardælum í gærmorgun var fyrst fremst tekin af Myoko Watai, sem tjáð hefur nánustu vinum sínum hérlendis að hafi verið gift Bobby Fischer og er fullyrt að hún hafi með sér vottorð sem sanni slíkt. Samkvæmt upplýsingum Stöðvar 2 var hugmyndinni um opinbera útför á Þingvöllum borin undir hana en hún hafnaði henni alfarið, með þeim orðum að slíkt hefði Bobby ekki viljað heldur fremur viljað láta jarða sig utan Reykjavíkur. Hugmyndin um Laugardæli var ekki sú eina sem kom til greina heldur var Stykkishólmur einnig í myndinni en Fischer hafði lýst þeirri ósk að flytja þangað. Ættingjar Fischers frá Bandaríkjunum er komnir til landsins og hugðust annast útförina og réðu þess vegna íslenska lögfræðing í þjónustu sína, fyrst og fremst til að fara yfir lagaleg atriði. Þeir fréttu hins vegar ekki af athöfninni í Laugardælum fyrr en eftir á. Þeir hafa nú beðið lögfræðinginn meðal annars um að kanna hvort rétt sé að Fischer hafi verið giftur, en það hefur grundvallarþýðingu fyrir erfðarétt. Eins er líklegt að skiptastjóri dánarbús vilji fá á hreint hvort Fischer hafi átt dóttur, sem þá væri aðalerfingi, að íslenskum lögum.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira