Greiða 735 milljónir fyrir samkeppnisbrot á greiðslukortamarkaði 11. janúar 2008 10:04 MYND/Vilhelm
Samkeppnieftirlitið hefur sektað þrjú fyrirtæki sem starfa á svið greiðslukorta um 735 milljónir króna í stjórnvaldssekt fyrir að misnota markaðsráðandi stöðu sína og langvinnt og ólögmætt samráð á árunum 1995-2006. Fyrirtækin féllust á að greiða upphæðina eftir því sem segir í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins. Samkeppniseftirlitið gerði í fyrra húsleit hjá Greiðslumiðlun, sem nú er Valitor, Kreditkortum hf., sem nú er Borgun, og Fjölgreiðslumiðlun hf. Eftir umfangsmikla rannsókn viðurkennir Greiðslumiðlun að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína með aðgerðum sem beindust að nýjum keppinauti, PBS/Kortaþjónustunni. Í sáttunum felst einnig að Greiðslumiðlun og Kreditkort viðurkenna að hafa haft með sér langvarandi og víðtækt ólögmætt samráð. Tók Fjölgreiðslumiðlun að hluta til þátt í því. Í sátt Fjölgreiðslumiðlunar er einnig viðurkennt að félagið hafi brotið gegn banni samkeppnislaga við samkeppnishömlum samtaka fyrirtækja. Fjölgreiðslumiðlun er fyrirtæki í sameiginlegri eigu viðskiptabankanna, sparisjóðanna, Greiðslumiðlunar, Kreditkorts og Seðlabanka Íslands. Meðal verkefna Fjölgreiðslumiðlunar er að reka rafræn kerfi, svokölluð RÁS-kerfi, fyrir heimildarleit, færslusöfnun og greiðslumiðlun vegna viðskipta með greiðslukort. Samkeppniseftirlitið beinir ýmsum fyrirmælum til félaganna þriggja, meðal annars að Kreditkort og Greiðslumiðlun hætti allri viðskiptalegri samvinnu við keppinauta félagsins nema félögin fái undanþágu þess efnis og að félögin þrjú dragi sig út úr öllum stjórnum, nefndum eða ákvörðunarhópum sem geta verið vettvangur fyrir ólögmætt samráð. Þá er lagt bann við því að Kreditkort, Greiðslumiðlun og Fjölgreiðslumiðlun miðli eða taki við upplýsingum sem raskað geta samkeppni. Sektirnar skiptast þannig að sekt Greiðslumiðlunar er 385 milljónir króna, sekt Kreditkorts 185 milljónir og sekt Fjölgreiðslumiðlunar 165 milljónir. Lyktir málsins hafi jákvæð áhrif á fjármálamarkaði Í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins segir enn fremur að stofnunin telji málið mjög þýðingarmikið og að full rök standi til þess að lyktir þess muni hafa í för með sér afar jákvæð áhrif á fjármálamarkaði. Ábyrg afstaða Greiðslumiðlunar, Kreditkorts og Fjölgreiðslumiðlunar í málsmeðferð Samkeppniseftirlitsins sé til þess fallin að skapa mun heilbrigðara samkeppnisumhverfi og stuðla að aukinni samkeppni á þessum mikilvæga markaði.
Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Fleiri fréttir Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Sjá meira