Telur rökstuðning iðnaðarráðherra faglegan 10. janúar 2008 12:09
Ingibjörg sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra segir rökstuðning iðnaðarráðherra fyrir ráðningu ferðamálastjóra og orkumálastjóra faglegan. Hún hefur hins vegar ekki lesið rökstuðning Árna Matthiesen, setts dómsmálaráðherra, fyrir ráðningu Þorsteins Davíðssonar en segir ráðherra almennt þurfa að gera sér grein fyrir því að þeir hafi ekki frjálsar hendur við slíkar ráðningar. Ráðning iðnaðarráðherra í stöður ferðamálastjóra og orkumálastjóra voru gagnrýndar af öðrum umsækjendum. Ferðamálafræðingar hafa gagnrýnt að líffræðingur hafi verið ráðinn í stöðu ferðamálastjóra og Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, sem sótti um stöðu orkumálastjóra, hefur sagt að menntun sín hafi ekki verið metin af verðleikum þegar Guðni A. Jóhannesson hafi verið ráðinn í starfið. Iðnaðarráðherra hefur rökstutt ráðningarnar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir rökstuðning Össurar faglegan. „Það getur auðvitað verið þunn lína stundum á milli einstaklinga þegar verið er að leggja mat á þá vegna þess að þeir eru mjög hæfir. Þá getur auðvitað orðið svolítið matskennt á endanum hvað það er sem ræður úrslitum en það er greinilegt að það var úr vöndu að velja hjá iðnaðaráðherra," segir Ingibjörg Sólrún. Ráðherrar hafi ekki alveg frjálsar hendur Ráðning setts dómsmálaráðherra, Árna Matthiesen, í stöðu héraðsdómara hefur einnig verið gagnrýnd. Árni réði Þorstein Davíðsson til starfans þrátt fyrir að fagnefnd hafi úrskurðað að hann væri ekki hæfasti umsækjandinn. Ingibjörg hefur ekki lesið rökstuðning Árna fyrir ráðningunni en sagði að almennt sé mikilvægt að ráðherrar geri sér grein fyrir að þeir hafi ekki alveg frjálsar hendur um það hvernig þeir standi fyrir ráðningum „heldur þarf að leggja hæfni til grundvallar og það þarf að vera skýr rökstuðningur og það er auðvitað eitt af því sem ráðherrar verða að gera. Þeir verða að rökstyðja sínar ráðningar og það sýnist mér nú að menn séu að reyna að gera," segir utanríkisráðherra
Mest lesið Brotist inn í Barnaloppuna Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Erlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Innlent Fleiri fréttir Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Sjá meira