Ásmundur tekur við kjaradeilu 10. janúar 2008 12:00
Kjaradeilu stærstu launaþegasamtaka landsins var vísað til ríkissáttasemjara í morgun. Verkalýðsforingjar segja að kveikiþráðurinn sé orðinn stuttur og að ekki verði beðið lengi með auknar þrýstiaðgerðir á atvinnurekendur.Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari var kallaður til verka þegar við upphaf samningafundar í morgun með sérstakri yfirlýsingu, sem Sigurður Bessason, formaður Eflingar og talsmaður Flóabandalagsins svonefnda, las upp og afhenti Vilhjálmi Egilssyni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, þess efnis að verkalýðsfélög við Faxaflóa hefðu vísað kjaradeilu sinni til sáttasemjara. Starfsgreinasambandið, sem er í samfloti, gerir það sama eftir hádegi.Þar með hefur ríkissáttasemjari tekið við stjórn viðræðna um kaup og kjör fyrir um fjörutíu þúsund manns. Þetta er langfjölmennasti hópurinn sem samið er fyrir og má telja líklegt að niðurstaðan við þetta borð leggi línuna fyrir aðra kjarasamninga í landinu.Eftir að hafa rætt um sérliði undanfarnar vikur ætla menn nú að vinda sér beint í launaliðina. Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir að kveikiþráðurinn sé orðinn stuttur og ekki verði beðið lengi með að setja aukinn þrýsting, komi ekkert frá atvinnurekendum.Vilhjálmur Egilsson, talsmaður atvinnurekenda, er hins vegar pollrólegur, og segir að ekki verði staðið upp frá borðum fyrr en menn sjái eitthvað jákvætt framundan.
Mest lesið Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Veður Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Innlent Fleiri fréttir Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sóttu mann sem féll niður bratta Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Íslendingur lést vegna hitaslags Ókeypis veðmálasíður „ekki eins og áfengislaus bjór“ „Staðan er alvarleg en við vitum ekki hversu alvarleg hún er“ Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Stuð og stemning á fjölskyldudögum í Vogum Fagna sekt vegna veðmálaauglýsinga og tjón eftir vatnsveður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Sjá meira