Innlent

Haldið sofandi á gjörgæslu eftir bílslys

Mynd/ GVA

Karlmaður, sem fluttur var með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild Landspítalans, eftir bílslys á Hrútafjarðarhálsi í Húnavatnssýslu í dag, er haldið sofandi á gjörgæslu. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi var ökumaður jepplings, sem var einn á ferð, að beygja inn á þjóðveginn af afleggjaranum að Svertingsstöðum en fór í veg fyrir vörubifreið sem hafnaði aftan á jepplingnum. Við það kastaðist jepplingurinn út af og slasaðist ökumaðurinn alvarlega. Ökumann vörubifreiðarinnar mun ekki hafa sakað en báðir bílarnir eru óökufærir eftir slysið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×