Búast við svörum frá ríkisstjórn í dag 8. janúar 2008 12:20
Tíminn er að renna út hjá aðilum vinnumarkaðarins til að ná samningum án milligöngu ríkissáttasemjara. Forystumenn Alþýðusambandsins funduðu í morgun en þar á bæ bíða menn enn svara frá ríkisstjórninni um mögulega aðkomu hennar að gerð kjarasamninga, og er búist við svörum í dag. Nú eru fjórar vikur liðnar frá því forystumenn Alþýðusambands Íslands gengu á fund forystumanna ríkisstjórnarinnar og kynntu fyrir þeim hugmyndir ASÍ um aðkomu stjórnvalda að kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. Fyrri kjarasamningar unnu úr gildi um áramótin og nú er hver að verða síðastur vilji menn að samkomulag náist um ramma utan um kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Alþýðusambandið leggur til ýmsar aðgerðir að hálfu stjórnvalda sem í heildina munu kosta ríkissjóð um eða yfir tuttugu milljarða króna. Þar munar mest um tillögu ASÍ um sérstakan tuttugu þúsund króna persónuafslátt til fólks með tekjur á bilinu 150 til 300 þúsund krónur á mánuði, en sú tillaga ein myndi kosta ríkissjóð um 14 milljarða króna á ári. Ef ríkisstjórnin kemur ekki nægjanlega til móts við kröfur Alþýðusambandsins er ljóst að ekkert samkomulag um almennar viðmiðanir í kjarasamningum mun liggja fyrir og viðræður verkalýðsfélaganna og vinnuveitenda gætu reynst flóknari. Formenn aðildarfélaga Alþýðusambandsins funduðu í morgun, þar sem farið var yfir stöðu mála. Þar á bæ eru menn farnir að mæla frest ríkisstjórnarinnar til viðbragða í klukkustundum en ekki dögum.
Mest lesið Systir Haraldar er látin Erlent Kourani farinn úr landi Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Innlent Fleiri fréttir Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Sjá meira