Sex manns fluttir á slysadeild eftir bruna í Tunguseli 7. janúar 2008 10:30 MYND/Stöð 2
Sex manns voru fluttir á slysadeild vegna gruns um reykeitrun í brunanum í Tunguseli í morgun. Slökkvilið lauk störfum um hálfáttaleytið en enn er allt á huldu um eldsupptök.Eins og fram kom í fréttum í morgun lést karlmaður þegar eldur kviknaði í íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi við Tungusel um klukkan sex. Þremur manneskjum var bjargað úr íbúðinni þar sem eldurinn kom upp og notuðust slökkviliðismenn við körfubíl þar sem ófært var um stigaganginn vegna reykjarkófs. Þá var fólki af fjórðu hæð hússins einnig bjargað með körfubíl.Sjö voru fluttir á sjúkrahús eftir brunann, þar á meðal maðurinn sem lést. Þrír voru útskrifaðir eftir skoðun en þrennt er í meðferð í svokölluðum háþrýstiklefa vegna reykeitrunar. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild Landspítalans en búist að þremenningarnir nái sér að fullu.Slökkvilið sendi strætisvagn á vettvang til að taka við því fólki sem býr í stigaganginum þar sem eldurinn logaði. Þá sendir Rauði kross Íslands þrjá sjálfboðaliða á vettvang til að aðstoða íbúana. Að sögn Ingibjargar Eggertsdóttur, verkefnastjóra hjá Rauða krossinum, var alls um að ræða 12 manns í íbúðunum en þeim var veitt áfallahjálp og útvegað föt. „Auk þess kom fólk úr nærliggjandi stigagöngum með kaffi og meðlæti," segir Ingibjörg en íbúarnir fengu að snúa aftur í íbúðir sínar um klukkan átta þegar slökkvistarfi var lokið.Ljóst er að íbúðin sem brann er illa farin og þá urðu töluverðar reykskemmdir á stigagangi hússins. Lögreglar rannsakar brunann og er rannsókn hennar er á byrjunarstigi og eldsupptök ókunn.
Mest lesið Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Erlent Fundu kannabisplöntur við húsleit Innlent Fleiri fréttir Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Sjá meira